Dóra Björt Guðjónsdóttir reyndi að fá Andrés Inga Jónsson til að þiggja 2. sæti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður en hann „haggaðist ekki“.
Borgarfulltrúi Pírata og nú frambjóðandi flokksins til Alþingiskosninganna í nóvember, skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hún dásamaði Andrés Inga Jónsson, þingmann Pírata en hann ákvað á dögunum að færa sig neðar á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður og hleypa Dóru Björt í 2. sætið. Dóra segir Andrés Inga vera hugsjónamann „fram í fingurgóma“ og „feministi, umhverfissinni og alvöru leiðtogi“. Segist hún hafa reynt að fá hann til að taka 2. sætið en hann hafi ekki haggast. Hvetur Dóra síðan kjósendur til að koma Andrési Inga á þing: „Nú spýtum við í lófana því Andrés skal fara á þing!“.
Hér má lesa færsluna í heild sinni:
„Hann Andrés Ingi vinur minn er hugsjónamaður fram í fingurgóma. Femínisti, umhverfissinni og alvöru leiðtogi sem lætur verkin tala og setur hagsmuni heildarinnar í fyrsta sæti. Það skal segjast að ég reyndi að fá hann til að hætta við þetta, en hann haggaðist ekki. Ég hef því þegið 2. sætið í Reykjavíkurkjördæmi suður, þar sem ég bý. Nú spýtum við í lófana því Andrés skal fara á þing!
Takk kærlega fyrir stuðninginn öll sem studduð mig, hann var dýrmætur. Mér gekk bara sómasamlega, einungis núverandi þingmenn á undan mér og svo
Lenya
á toppnum sem er mögnuð og sterk. En nú er það barátta fyrir réttlátara og grænna Íslandi! Takk Andrés Og áfram Píratar“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir