Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ballerin brotlenti og flaug til Evrópu: „Ég er ekki tilbúinn til að trúa því”

Mynd / Skjáskot RÚV
Mynd / Skjáskot RÚV

Michele Roosevelt Edwards, gjarnan nefnd Ballarin, er flogin af landi brott eftir að til­boði hennar í Icelandair var hafnað. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hyggst hún fara króka­leið heim til Banda­ríkj­anna um Evrópu. Hún hugð­ist kaupa kjöl­festu­hlut fyrir sjö millj­arða króna í Icelandair en var hafnað þar sem hún þótti ekki geta sýnt fram á getu til að standa við til­boðið. Arion­banki var bak­hjarl hennar og hafði milli­göngu í mál­inu.

Þegar í gær þótti ljóst að áhugi á útboði Icelandair væri það almennur að mark­mið stjórn­enda félags­ins myndu nást. Það kom svo á dag­inn. Eftir skoðun á til­boði Ballerin var ákveðið að vísa henni frá. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs vildi Ballarin, sem í dag leggur áherslu á að vera kennd við Banda­ríkja­for­set­ann Roosevelt, verða stjórn­ar­for­maður Icelandair. Viðræður milli hennar og stjórn­enda Icelandair um sam­starf höfðu staðið yfir síð­ustu vikur.

Stjórn Icelandair hefur aftur á móti hafnað til­boði Ballarin sem hljóð­aði upp á sjö millj­arða króna. Þátttöku Ballarin í hluta­fjár­út­boði Icelandair er því lokið. Í ljósi við­skipta­sögu Edwards hér á landi þótti ljóst að umsjón­ar­að­ilar útboðs­ins hafa beðið athafna­kon­una um stað­fest­ingu á greiðslu­getu og þær trygg­ingar virð­ist hún ekki hafa getað veitt.

Páll Ágúst Ólafsson lög­maður hefur sinnt mál­efnum Ballarin í útboðs­ferl­inu. Í sam­tali við Mannlíf sagð­ist hann ekki hafa fengið form­lega höfnun frá Icelandair vegna til­boðs­ins. „Við vitum ekk­ert annað en það sem hefur komið fram í fjöl­miðlum. Ég er ekki til­bú­inn til að trúa því fyrr en ég tek á því að til­boð­inu hafi verið hafnað alfarið,“ segir Páll Ágúst.

Páll Ágúst Ólafsson lög­maður. Mynd / Ísmál lög­manns­þjón­usta

Ballarin keypti eignir WOW air úr þrota­búi félags­ins og lagði í gær fram sjö millj­arða til­boð í hluti Icelandair. Útkoma Icelandair í hluta­fjár­út­boð­inu virð­ist tals­vert far­sæl þar sem umfram­eft­ir­spurn var eftir hlutum í félag­inu. Fyrir utan Live líf­eyr­is­sjóð­inn, þar sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hafði sigur í atkvæða­greiðslu, tóku allir stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir þátt í úboð­inu og söfn­uð­ust hlutir fyrir rúma 37 millj­arða króna.

Ballarin var hins vegar hafnað og hún flogin af landi brott. Hún er þekkt fyrir ævin­týra­mennsku líkt og Við­skipta­blaðið fór yfir. Þar segir af samn­inga­við­ræðum hennar við sómalska sjó­ræn­ingja, afskiptum hennar í Úkraínu, flug­rekstri í Djíbútí, vega­fram­kvæmdum í Kenýa og veit­inga­rekstri í Virginíu-fylki. Árið 1986 reyndi hún einnig fyrir sér í stjórn­málum og bauð sig fram til þings en hafði ekki erindi sem erf­iði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas