Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Brynjar sendir Pírötum afmæliskveðju: „Sennilega gagnslausasta stjórnmálaafl sem komið hefur fram“

Athugið, myndin er samsett.
Athugið, myndin er sam­sett.

„Mér hefur verið boðið á 10 ára afmæl­is­há­tíð Pírata í Reykja­vík, en sá merki við­burður verður í Tjarn­ar­sal ráð­húss Reykja­víkur. Í fund­ar­boð­inu er því haldið fram að Píratar í Reykja­vík hafi verið í far­ar­broddi í að stuðla að gegn­sæi, nýsköpun og lýð­ræði í sam­fé­lag­inu.“ Þannig hefst Facebook-færsla mein­horns­ins og fyrrum þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Brynjars Níels­sonar sem hann birti fyrir stundu.

Eins og allir þeir sem fylgj­ast með íslenskri póli­tík vita er ekki mik­ill vin­skapur á milli Pírata og Sjálf­stæð­is­manna enda hafa þing­menn Pírata, með Björn Leví Gunn­ars­son fremstan í flokki, verið dug­legir að láta höggin dynja á Sjálf­stæð­is­mönnum, frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður fyrir 10 árum síðan. Og nú ætlar flokk­ur­inn að fagna ára­tugs­af­mæl­inu og datt í hug að bjóða Brynjari Níels­syni í veisl­una. Brynjar hélt áfram með færsl­una:

„Eina aug­ljósa arf­leifð Pírata í Reykja­vík er aðför að tján­ing­ar­frels­inu. And­stæðar skoð­anir er reynt að þagga niður og afgreiða sem fals­frettir, upp­lýs­ing­ar­óreiðu eða öfga. Gengið svo langt að krefj­ast þess að fjöl­miðlar þar sem reifuð eru and­stæð sjón­ar­mið skuli sviptir opin­berum styrkjum. Þetta eru helstu afrek þeirra í þegar kemur að gegn­sæi og lýð­ræði. Vissu­lega eru þeir í far­ar­broddi í nýsköpun í fjár­mála­óreiðu, skipu­lags­slysum og myglu en þar með er það upp­talið. En mesta afrek þeirra er að geta dregið Sam­fylk­ing­una og Viðreisn niður á sitt plan, bæði í borg­inni og lands­málum. Þeim er ekki allsvarnað þegar kemur að því að hafa áhrif.“

Eins og áður sparar Brynjar ekki stóru orðin enda Sjálf­stæð­is­menn dug­legir að benda á flís­arnar í augum ann­arra án þess að taka eftir bjálk­anum í eigin augum. Þetta sést glöggt í næstu orðum þing­manns­ins fyrr­ver­andi:

„Tveir stjórn­mála­fræð­ingar munu kynna á afmæl­is­há­tíð­inni nið­ur­stöðu rann­sókna um stöðu Pírata á Íslandi. Efast ekki um að nið­ur­staða þeirra sé sú að Píratar hafi verið leið­andi í mann­rétt­indum, lýð­ræði, nýsköpun og gegn­sæi þótt eng­inn kann­ist við það. Eina sem fólk man er sund­ur­laus og óskilj­an­legur mál­flutn­ingur, iðju­semi við að grafa undan mik­il­vægum stofn­unin rík­is­ins og til­lögur þeirra um að allir iðju­leys­ingar lands­ins fái fram­færslu í nafni borg­ara­launa. Þetta er senni­lega gagns­laus­asta stjórn­mála­afl sem komið hefur fram og senni­lega rétt hjá mann­inum sem sagð­ist ekki treysta þeim til að fara út í búð fyrir sig þótt þeir hefðu miða.“

Að lokum ger­ist Brynjar heldur háfleygur í skotum sínum.

„Þetta er afmælis­kveðja til Pirata og rétt er að rifja upp að vinur er sá er til vamms segir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Upphæðin er meira en tvöfalt hærri en áður hafði komið fram í rannsókn bandarísks öldungadeildarþingmanns. Skjölin ná einnig til skattagagna Trumps.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið