Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Ég hef alltaf elskað þig Leonard Cohen

Ég staulast á fætur og er tilbúinn í slaginn. Smóka eina sneggu rétt áður en vatnið er nægilega heitt fyrir Senseo vélina mína.

Herði upp hugann um leið.

Það er ekki auðvelt að vakna um miðjan vetur.

Þarf að spyrja spegilinn og skápana hvort þetta sé í raun ég, en ekki tvífari minn.

Legg í hann og spæni upp malbikið á leið minni til Laugar­bakka. Hef í fórum mínum heimilis­fang párað á upplitað og eldgamalt blað með bleikum tússpenna.

Gamall vinur sem mögulega bíður mín þar; og ég get ekki gleymt, en hverju, það man ég ekki.

Ég elskaði þig nánast strax, en man að þú varst ekki í skýjunum þegar ég spurði um leið og þú spurðir um ástina, eins og Kalli kóngur, hvað er eiginlega ást?

Svarið var út í hött og inn í mynd; og vegg­fóðraður veru­leikinn breytti mér í ísbjörn sem beið þess að komast af ísjakanum og vera skotinn sem fyrst.

Ég var skotinn, en hélt svo bara áfram mína leið. Ég meina, ef þau segja að það hafir verið þú þá segðu bara að það hafi verið var ég.

Bráðum verð ég hjá þér, í það minnsta í draumum mínum, og færi þér blömvönd gerðan úr kaktusum og afgangs málningu frá þeim tíma sem þröng föt voru í tísku ásamt próf­gráðum sem áttu engin systkini.

Þú sagðir mér alltaf að kaktusar voru eins og fallegur og harður veruleiki þar sem Chihuahua hundur sem misst hefur prófið eftir aðeins tveggja vikna akstur ræður öllu nema frjálsum vilja okkar sem mér hef alltaf fundist falskur og heima­tilbúinn.

Ferðin var þess virði, en verst að ég get ekki gleymt þessu sem ég man ekki. Sem er lífið í hnotskurn; eggja­skurn og páskaegg.

Allt gott. En þú? Svo kveðjumst við.

Ég hef alltaf elskað þig, Leonard Cohen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim