Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Sara dáleiddi Gunnar í beinni: „Svona bati, svona lækning þarf að koma innan frá“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varpinu Þvotta­húsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orku­heilarinn Sara Páls­dóttir. 

Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orku­heilun samhliða lögmennsku í nokkur ár núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir. 

„Það er ekki hægt að dáleiða manneskju nema að hún vilji verða dáleidd, annars er það ekki hægt.“

Sara segir að hver hugsun sé orka þó þessi orka sjáist ekki berum augum.

„Ég nota aðferð, ég tala við undir­meðvitundina mína en undir­meðvitund okkar allra sér inn í orku­heiminn og þessi orka sem er í orku­heiminum er ósýnileg en hún er samt raun­veruleg, hver hugsun er orka, hver tilfinning er orka og jafnvel þótt við sjáum ekki þessa orku þá skynjum við hana og finnum fyrir henni.“

Hún hóf þessa vegferð innan dáleiðslu og hugleiðslu í kjölfar mikillar þjáninga sem voru nálægt því að keyra hana alveg í kaf. Hún byrjaði snemma að drekka illa samhliða því að vera alvarlega þjökuð af átröskun. Svo kom að því að hún fór í áfengis­meðferð og sótti mikið AA fundi í mörg ár. Í dag segist hún vera hætt AA fundar­mennsku en líti alltaf á sig sem AA konu og býr yfir miklu þakklæti í garð AA samtakana fyrir það sem samtökin gáfu henni. 

Eftir að hún hætti að drekka fór hún að upplifa mikla verki í líkamanum, stoð­kerfis og bólgu­verkir sem virtust ekki eiga sér neina rökrétta skýringu. Það var sama hvert hún leitaði, læknar einfald­lega vissu ekkert hvað var í gangi. Undir lokin var ástandið orðið þannig að hún hélt einfald­lega að hún þyrfti að skrá sig á örorku sökum þreytu og verkja. Hún var farin að getað unnið aðeins til hádegis en þá var hún einfald­lega búin á því af verkjum.

„Svona bati, svona lækning þarf að koma innan frá. Þegar að fólk kemur til mín í dáleiðslu og það er ekki bara að glíma við kvíða, það er að glíma við brotna sjálfs­mynd, vöðva­bólgu, það er kannski að glíma við þreytu og höfuð­verki. Það er svona kokteill af allskonar neikvæðum einkennum og þegar við förum að skoða ræturnar sjáum við að þær eru allar samtvinnaðar eða þær sömu.“

Hugleiðsla og ásetningur sem snéri að því að lækna sjálfan sig leiddi Söru inn í upprisu sem með tímanum hefur ekki bara losað hana undan allri þeirri þjáningu sem hrjáði hana heldur virðist hún búa yfir öflugum mætti til að hjálpa öðrum. Hún bíður upp á allskonar hjálp í formi dáleiðslu og orku­heilunar auk þess sem hún heldur námskeið og fyrir­lestra tengt því hvernig við getum hreinsað út neikvæða orku sem situr föst í kerfinu okkar og öðlast fyrir vikið stjórn yfir lífi okkar. Til að mynda bíður hún upp á ókeypis fræðslu og dáleiðslu en hér má nálgast það.

„Þetta er það sem kallað er flökku­verkir og það er svona týpískt verkja­vandamál sem tengjast því sem kallast neikvæð orka. Þú ert kannski stundum að drepast í bakinu eða stundum að drepast í kjálkanum, stundum í mjóbaki, stundum í öxlunum, þetta flakkar á milli, misalvarlegt og þetta eru klassísk einkenni þess að það sé ekki nein líkamleg orsök.“

Er Gunnar bauð henni Söru að koma í Þvotta­húsið stakk hún upp á því að hún myndi dáleiða hann í þættinum. Gunnar tók vel í það en það þýddi að hann þurfti að mæta til hennar í undirbúnig fyrir viðtalið í dáleiðslu­hitting. Þar las hún orkuna hans og leiddi hann svo inn í djúpa dáleiðslu. í stólnum hjá Söru sat Gunnar i tæpan klukku­tíma grátandi og hlæjandi til skiptis. Hann upplifði meðal annars sterka sorg tengda atburði sem hann lent í fyrir tíu árum þar sem vinkona hans dó í fanginu á honum á Suður Indlandi í leigubíl á leiðinni á spítalan eftir slys. Eftir slysið tók einnig við atburðarrás sem skildi eftir sig gríðarlegar agnir neikvæðrar orku sem hafði með flutning á líki vinkonunar innan um líkhús og krufninga­spítala í ókunnugu landi að gera.

Aukreitis kom sterkt til hans fullvissa um að gamall ótti sem hann hafði burðast með væri í raun ekki hans heldur ákveðin eind sem var frá öðrum komið, einskonar erfðasynd.

„Stundum fáum við orku í arf frá foreldrum okkar eða forfeðrum og hún getur farið svona á okkur, við skynjum hana og finnum fyrir henni og svo getur hún líka farið á annað fólk sem er í kringum okkur jafnvel þótt að við viljum það ekki.“

Sara segir að við séum alltaf að skapa okkur sjálf, okkar eigin heilsu og líf með huganum.

„Hugurinn og orkan er alltaf að skapa þetta efnislega, og við bara alltaf að skapa okkur sjálf, heilsu okkar, kringum­stæður og líf með því hvernig við hugsum og hvernig við erum að nota hugann. Það er þannig raun­verulega og ég er búin að upplifa þetta sjálf í gegnum breytingar á mínu lífi og í gegnum þann bata sem ég fékk.“

Þessi dáleiðsla var svo undir­búningur fyrir dáleiðsluna sem Sara framkvæmdi á Gunnari í lok þáttarins, bæði í hljóði og mynd. Dáleiðslan sem tók um 30 mín er svo hluti af þættinum og í raun með ólíkindum hve dúpt þau Sara og Gunnar náðu að vinna saman miðað við að vera í viðurvist bæði Davíðs og Fúsa tækni­manns sem fylgdust með. Dáleiðslan fór með Gunnar á bólakaf í undir­meðvitund hans þar sem svörin við öllum spurningum búa. Þrátt fyrir það ástand sem hann var í, sem líktist helst transi, var hann hæfur í að greina og koma augu á þá neikvæðu orku sem sátu eftir í vitundinni eftir þetta slys sem gerðist fyrir tíu árum síðan. Með miklum átökum tókst honum að losa orkuna úr kerfinu og taka á móti ljósi og kærleika í staðinn.

Gunnar lýsir því í dáleiðslunni hvernig hann fór alveg úr líkamaum og sameinaðist öllu því sem er, algjört out off body experience. Hann tókst á við alvarleikann, sorgina og sektina og var svo leiddur út úr dáleiðslunni hlæjandi og glaður, í algjörri sæluvímu og laus undan gríða­legum þunga sem hann hafði burðast með í áratugi.

Það skiptir engu máli hver kvillinn er, Sara vill meina að maður komist alltaf lengst með að hreinsa burt neikvæð forrit úr undir­meðvitundinni því þar liggi oftast örsök allra kvilla.

Sara, eins sagt hefur verið bíður upp á námskeið og fyrir­lestra ásamt dáleiðslu og orku­heilun. 

https://sarapalsdottir.is

Þáttinn má horfa á í heild sinni á YouTube sem og hlusta á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt