Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

„Litlu stóru mál“ Sigurðar Inga – Vill endurskoða stjórnarskrá Íslands

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins

Eins og flestir vita eru alþing­is­kosn­ingar handan við hornið og kosn­inga­bar­átta flokk­anna í fullum gangi. Eins og getur og ger­ist eru mál­efni sem eru lyk­il­at­riði í kosn­inga­bar­áttu og fyrir þessar kosn­ingar hafa hús­næð­is­mál, vextir, verð­bólga og mál­efni hæl­is­leit­enda verið aðal­málin hingað til.

Mannlíf vildi vita meira um stór og mik­il­væg mál­efni sem hafa ekki fengið mikið pláss í umræð­unni hingað til og sendi tíu spurn­ingar á alla for­menn og leið­toga þeirra flokka sem eru í fram­boði og mun Mannlíf birta svör allra þeirra sem svör­uðu. Við nefnum þessi mál­efni „Litlu stóru málin“

Nú er komið að Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

1. Vilt þú leyfa aukið frelsi í veðmálastarfsemi á Íslandi og af hverju?

Framsókn telur mik­il­vægt að stjórn­völd íhugi að því hvernig veð­mála­starf­semi er stjórnað, með áherslu á að vernda neyt­endur og lýð­heilsu­sjón­ar­mið. Tryggja þarf að þessi starf­semi fari fram undir opin­beru eft­ir­liti og að henni verði sett almenn lagaum­gjörð. Þannig sé hægt að stuðla að ábyrgri spila­mennsku á Íslandi, og hamlað gegn skað­legum áhrifum á almenn­ing.

2. Hver er þín afstaða gagnvart réttindabaráttu trans fólks á Íslandi?

Framsókn telur mik­il­vægt að öll rétt­indi ein­stak­linga séu virt og bar­átta fyrir jafn­rétti sé studd í hvít­vetna.

3. Hvað finnst þér um að ríkið styrki listir og menningu?

Framsókn styður að rík­is­fjár­magni sé veitt til lista og menn­ingar um allt land. Mik­il­vægt er að tryggja aðgengi að menn­ingu og listum, og að byggja upp list­ræn sam­fé­lög um land allt. Framsókn hefur einnig lagt mikla áherslu á skap­andi greinar og menn­ing­ar­starf­semi, sem er mik­il­væg fyrir kröft­ugt efna­hags­líf og sam­keppn­is­hæfni þjóð­ar­innar.

4. Ert þú fylgj­andi því að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi í Alþing­is­kosn­ingum og af hverju?

Framsókn er ekki fylgj­andi því. Mik­il­vægt er að tryggja að fólk á lands­byggð­inni hafi rödd á Alþingi og geti kosið sinn full­trúa. Því hefur Framsókn, með byggða­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi, ekki tekið undir það að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi.

5. Hversu mikilvæga telur þú kristni vera í íslensku samfélagi í dag?

Framsókn styður trú- og lífs­skoð­un­ar­frelsi, og vill að Þjóð­kirkjan hafi áfram mik­il­vægt hlut­verk í íslensku sam­fé­lagi.

6. Hvað finnst þér um aðstöðu til íþróttaiðkunar á Íslandi?

Framsókn leggur mikla áherslu á mik­il­vægi íþrótta­iðk­unar í íslensku sam­fé­lagi. Íþróttir stuðla að heilsu, vel­ferð og félags­legri sam­heldni. Framsókn vill efla íþrótta­starf­semi, sér­stak­lega meðal barna og ung­menna, og styðja við aðgengi að íþróttum um land allt. Framsókn telur einnig mik­il­vægt að fjár­festa áfram í þróun og við­hald íþrótta­fé­laga og mann­virki.

7. Hvað finnst þér um fjárhagsstuðning ríkisins við stjórnmálasamtök?

Framsókn telur brýnt að fjár­hags­stuðn­ingur við stjórn­mála­flokka séu í sam­ræmi við lög og reglur, og að hann sé gagn­sær og sann­gjarn.

8. Hvað finnst þér um blóðmerahald?

Framsókn leggur áherslu á að ef starf­rækja þurfi blóð­mera­hald, sé það starf­rækt með þeim hætti að lögum og reglum um dýra­vel­ferð og aðbúnað dýra sé fylgt í hví­vetna. Þá hefur flokk­ur­inn unnið að því mark­miði. Einnig er nauð­syn­legt að ávallt sé borin virð­ing fyrir dýrum, sem nýtt eru í land­bún­aði.

9. Telur þú að þjóðin eigi að fá að kjósa um inngöngu í ESB og af hverju?

Framsókn telur að hags­munum Íslands sé best varið utan ESB, og telur því að Ísland eigi ekki að ganga í sam­bandið. Ef til þess kæmi, þá ætti þjóðin að fá að greiða atkvæði um slíkt. Að því sögðu leggur Framsókn áherslu á áfram­hald­andi gott sam­starf við ESB og nýt­ingu þeirra tæki­færa sem fel­ast í því að vera með­limur EES – samn­ings­ins. EES – samn­ing­ur­inn hefur sýna kosti og galla, eins og hver annar samn­ingur, en Ísland hefur mik­inn ávinn­ing af veru sinni í EES kerf­inu.

10. Hver er þín afstaða til stjórnarskrá Íslands?

Framsókn styður end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar séu breyt­ing­arnar byggðar á breiðri sam­stöðu. Stjórn­ar­skrá Íslands er sam­fé­lags­sátt­máli þjóð­ar­innar og breyt­ingar á henni verða að end­ur­spegla sam­eig­in­leg grunn­gildi þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn