Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Enginn hefur veitt fleiri rjúpur í einni veiði: „Þetta voru bara náttúruhamfarir hjá rjúpunum“

Gestur Mann­lífsins að þessu sinni er Indriði Aðal­steinsson bóndi á Skjald­fönn við Ísafjarðar­djúp. Búskapur hefur verið á Skjald­fönn í tæp 200 ár í beinan karllegg frá Ólafi Jónssyni frá Hraundal, sem hóf þar búskap árið 1826. Í dag býr Indriði einn á Skjald­fönn og unir hag sínum vel.

Indriði setti sjálfsagt Íslandsmet er hann veiddi rúmlega 200 rjúpur í einni veiði. Voru aðstæðurnar til veiðana all sérstakar.

„Það voru mjög sérstakar aðstæður. Það var búið að vera óskapleg djöfulsins stórhríð tvo dagana á undan. Og einhvernveginn virðist sem norð-austan áttin hafi sópað saman öllum rjúpunum sem voru á Ströndum eða hvaðan sem þær komu. Það er ekki hægt að lísa þessu. Það var hörku­frost. Í frosti og logni þá flýgur hún mjög lítið. Hún hleypur bara á undan manni. Þannig að hún var auðvitað auðveld bráð. En hitt er annað, það var klofófærð. Ég var svo vitlaus að vera ekki á skíðum eða þrúgum eins og ég var oft í. Þannig að ég var alltaf upp í klof í kjarrinu. Og ég bara ekkert með mér, þú berð ekkert með þér 200 rjúpur. Við köllum að setja þær í svokölluð köst. Þú ert svona 20, 30, 40 metra og heldur kannski á tveimur, þremur rjúpum og svo seturðu kastið inn í runna við slóðann. Svo að fálki eða hrafn komist ekki í þær. Og svo sækirðu þær þegar þú ert annað hvort búinn með skotfærin eða birtan farin. Þá kemurðu þeim í bíl eða í skjól þannig að þær geymist þar til þú hefur möguleika á að koma þeim heim. Það var 10 stiga frost. Maður var rennandi blautur af svita bæði upp úr og niður úr. Ég var að verða skotfæra­laus og alveg hættur að skjóta nema vera öruggur með þrjár, fjórar í skoti. Það var kallað að sópa. Ég skaut aldrei fugla á lofti og hef aldrei gert. Þegar þú sópar þá leggstu niður og reynir að láta drífuna annað hvort gaddinn eða yfirborð snjósins. Það er kallað að sópa. Þá geturðu fengið nokkuð margar í skoti. Þetta kallaði pabbi að sópa og ég hef þetta eftir honum.“

Og þá var það heim­ferðin.

„Ég var með minn Landrover tiltækan á veginum. Klukku­tíma áður en birtan þvarr þá náttúru­lega var ég orðinn skotfæra­laus og þá var bara að fara að draga að bílnum á snjóþotu sem ég var með á jeppanum. Og það tók alveg upp undir tvo tíma að koma þessu í bílinn og þá voru nú rjúpurnar farnar að gægjast yfir sætin fyrir aftan mig á leiðinni heim. Aftur­hlutinn á jeppanum var orðinn það fullur.“

Eftr að heim var komið byrjaði Indriði á að fara í sturtu, til að ná úr sér hrollinum og hafa fata­skipti. Og svo gaf hann fénu. „Svo fórum við feðgar að telja úr jeppanum. Það voru 194 rjúpur. Og pabba fannst nú verst, sem gömlum og reyndum rjúpna­manni að ég skyldi ekki fara yfir 200. En svo þegar ég fór daginn eftir, þá fann ég eitt kastið sem mér hafði yfirsést í myrkrinu daginn áður. Þetta var sjö rjúpna kast þannig að þetta fór upp í 201 rjúpu í það heila.“

Er Reynir spurði Indriða hvort þetta væri ekki Íslandsmet sagði hann það vel geta verið. „Já, ja, það voru nú fleiri en ég sem fóru hátt. Ég veit um eina skyttu hérna, Jón á Hróðbergi á Hólmavík sem fékk á annað hundrað líka, 120, eitthvað svoleiðis. Þetta voru bara náttúru­hamfarir hjá rjúpunum. Þetta er alveg ótrúlegt. Ég hefði aldrei trúað þessu daginn áður.“

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Húsið var reist árið 1993
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi