Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

L.A. Times styður ekki Harris í forsetakosningunum: „Við drögum línuna við þjóðarmorð“

Kamala Harris.
Kamala Harris.

Dóttir eig­anda Los Angeles Times segir að dag­blaðið hafi ákveðið að lýsa ekki yfir stuðn­ingi við fram­boð Kamölu Harris í for­seta­kosn­ing­un­inum sem fara fram í næstu viku, vegna afstöðu hennar til þjóð­ar­morðs­ins á Gaza.

Dóttirin, Nika Soon-Shiong sagði í til­kynn­ingu: „Fjöl­skylda okkar tók þá sam­eig­in­legu ákvörðun að styðja ekki for­seta­fram­bjóð­anda. Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég hef tekið þátt í ferl­inu. Sem rík­is­borg­ari lands sem fjár­magnar opin­ber­lega þjóð­ar­morð, og sem fjöl­skylda sem upp­lifði aðskiln­að­ar­stefnu Suður-Afríku, var ákvörð­unin tæki­færi til að hafna rétt­læt­ingum fyrir því að blaða­menn séu ítrekað gerðir að skot­mörkum og áfram­hald­andi stríði gegn börnum.

Nika Soon-Shiong

Dr. Patrick Soon-Shiong, millj­arða­mær­ing­ur­inn sem keypti Los Angeles Times árið 2018 fyrir 500 millj­ónir doll­ara, vís­aði síðar á bug ummælum hennar og sagði að hún hefði ekki tekið þátt í ákvörð­un­inni.

„Nika talar í eigin per­sónu um skoðun sína, eins og sér­hver sam­fé­lags­með­limur hefur rétt á að gera. Hún gegnir ekki hlut­verki hjá LA Times, né tekur þátt í neinum ákvörð­unum eða umræðum við rit­stjórn­ina, eins og margoft hefur komið fram,“ sagði hann í yfir­lýs­ingu til CNN.

Ummælin koma nokkrum dögum eftir að Patrick Soon-Shiong, tók þá óvæntu ákvörðun að hætta við þær áætl­anir að styðja Harris, sem vakti reiði innan blaðs­ins og leiddi til þess að fjöldi les­enda sagði upp áskriftum sínum að blað­inu. Dag­blaðið hefur stutt fram­bjóð­anda í öllum for­seta­kosn­ingum síðan það studdi Barack Obama árið 2008.

Þrír með­limir rit­stjórnar L.A. Times sögðu af sér vegna ákvörð­un­ar­innar. Mariel Garza, leið­togi rit­stjórnar blaðs­ins sem sagði af sér á mið­viku­dag­inn, sagði í sam­tali við New York Times að hún hefði ekki fengið neina ástæðu fyrir því hvers vegna hann neit­aði stuðn­ingnum.

„Ef það var ástæðan fyrir því að Dr. Soon-Shiong hindr­aði stuðn­ing­inn við Kamölu Harris, var því ekki komið á fram­færi við mig eða rit­stjórn­ina,“ sagði Garza í yfir­lýs­ingu. „Ef mark­mið fjöl­skyld­unnar var að „hafna rétt­læt­ingum fyrir því að blaða­menn séu ítrekað gerðir að skot­mörkum og áfram­hald­andi stríðs gegn börnum,“ þá náði þögnin ekki þeim mark­miðum.

Yfir­lýs­ing Nika Soon-Shiong kemur degi eftir að hún tjáði sig um „deil­una og rugl­ing­inn vegna ákvörð­unar L.A. Times um að styðja ekki for­seta­fram­bjóð­anda,“ þar sem hún sagði í færslu á sam­fé­lags­miðlum að þau „dragi lín­una við þjóð­ar­morð“.

„Þetta er ekki atkvæði fyrir Donald Trump,“ skrif­aði hún. Þetta er synjun á að STUÐNINGI við fram­bjóð­anda sem styður stríð gegn börnum. Ég er stolt af ákvörðun L.A. Times rétt eins og ég er viss um að það er ekk­ert til sem heitir börn myrk­urs­ins. Það er ekk­ert til sem heitir mennsk dýr,“ en þar vitnar hún í orð Benja­mins Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísrael ann­arra ráða­manna lands­ins, sem þeir hafa notað um Palest­ínu­menn.

Í við­tali í vik­unni sagði Patrick Soon-Shiong að hann hefði boðið rit­stjórn blaðs­ins þann kost að útfæra nánar stefnumun milli Harris og Trump í stað stuðn­ings.

„Ég ótt­ast að ef við veljum annan hvorn [fram­bjóð­and­ann] myndi það bara auka ágrein­ing­inn,“ sagði Soon-Shiong við Spectrum News 1 SoCal.

Los Angeles Times er ekki eina blaðið sem hefur ákveðið að styðja ekki við hvor­ugan fram­bjóð­and­ann í kom­andi for­seta­kosn­ingum því á föstu­dag­inn til­kynnti The Washington Post, að það myndi ekki lýsa yfir stuðn­ingi við neinn for­seta­fram­bjóð­anda, hvorki nú né í fram­tíð­inni. Líkt og hjá L.A. Times var ákvörð­unin tekin af eig­anda blaðs­ins, millj­arða­mær­ingnum Jeff Bezos.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Heimur

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baghaei, segir ásakanirnar tilhæfulausar.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér