Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Stefán útvarpsstjóri skiptir um skoðun – Sækir um endurráðningu í skugga símamáls Páls skipstjóra

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri er hættur við að hætta og hefur óskað eftir því við stjórn RÚV að vera ráð­inn áfram. Hann lýsti yfir því á Bylgj­unni fyrir tæpu ári, 1. nóv­em­ber 2023, að hann myndi hætta sem útvarps­stjóri þegar fimm ára ráðn­ing­ar­tíma hans lýkur. Hann sagð­ist þá hafa hugsað sér starf útvarps­stjóra sem fimm ára
verk­efni.

„Ég hef verið um það bil fimm til tíu ár á hverjum stað. Mér finnst það hæfi­legt og eðli­legt fyrir stjórn­anda; bæði fyrir við­kom­andi sjálfan og ekki síður fyrir við­kom­andi stofnun eða rekstur,“ var haft eftir Stefáni í kjöl­far sam­tals­ins í Bítinu á Bylgj­unni.
Morg­un­blaðið átti í sam­skiptum við Stefán vegna máls­ins. Í smá­skila­boðum til blaðs­ins kemur fram að Stefán vill halda áfram sem útvarps­stjóri.

„Málið er á borði stjórn­ar sam­kvæmt lög­um. Ég hef gert stjórn­inni grein fyr­ir því að ég sé reiðubú­inn að gegna starf­inu áfram þegar nú­ver­andi ráðn­ing­ar­tíma­bili lýk­ur á næsta ári,“ segir í skila­boðum Stefáns.

Stefán hefur staðið í kröppum dansi vegna Símamáls Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra. Rík­is­út­varpið er talið hafa gegnt lyk­il­hlut­verki við að brjóta upp síma Páls og fram­vísa gögnum úr sím­anum á aðra fjöl­miðla.

Páll Stein­gríms­son og Þóra Arn­órs­dóttir. Myndin er sam­sett

Starfs­menn RÚV með Þóru Arn­órs­dóttur, þáver­andi rit­stjóra Kveiks, í broddi fylk­ingar hafa verið til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á Akureyri vegna þess máls. Þeir hafa neitað að gefa upp nafn tækni­manns­ins sem tók við sím­anum.

Lög­reglan er hætt rann­sókn en búist er við að þeirri ákvörðun verði vísað til rík­is­sak­sókn­ara. Þá er til skoð­unar að stefna starfs­mönnum RÚV og jafn­vel stofn­un­inni sjálfri í einka­máli. Skuggi síma­máls­ins hefur verið yfir stofn­unni og þá ekki síst Stefáni Eiríks­syni und­an­farin ár. Þá hefur rekstur RÚV verið erf­iður og stofn­unin lifað að nokkru leyti af eigna­sölu.

Morg­un­blaðið segir að bú­ist sé við að gengið verði frá end­ur­ráðn­ingu Stefáns á stjórn­ar­fundi síðar í þess­um mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn