Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Söguleg breyting á 17. júní - frá fjörugum götudönsum í hoppukastala

„17. júní er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem eitt sinn var“

Egill Helgason
Egill Helgason Mynd: RÚV

Hátíðarhöld á þjóð­hátíðar­deginum 17. júní hafa tekið stór­stígum breytingum á síðustu áratugum. Þar sem áður ríkti mikil stemning, götu­dansar og prúðbúinn mann­fjöldi í miðbænum, einkennist dagurinn nú fremur af fámennari barna­hátíðum og færri viðburðum á kvöldin. Einn af þeim sem kallar eftir því að lífi sé blásið í þessa sögufrægu hátíð á nýjan leik er fjölmiðla­maðurinn Egill Helgason í pistli á Facebook síðu sinni.

„Ég á minningu um að hafa fengið sykur­húðað epli á 17. júní. Þetta var tíminn þegar öll börn voru prúðbúin á þjóð­hátíðar­deginum. Litlir strákar voru klæddir eins og kallar, tískan var að setja á þá týróla­hatta með fjöður. Ég slapp sem betur fer við hattinn. Sumar stelpur voru í upphlut og flestar með slaufu í hárinu og í sport­sokkum eins og það var kallað.

Það var miklu meira að gerast á 17. júní þá og maður hlakkaði til dagsins. Í bænum úði og grúði af sölu­tjöldum frá íþrótta­félögum og félagaga­samtökum. Það voru skrúð­göngur og stór skemmtun í Miðbænum. Ekki man ég eftir því þegar Sinfóníu­hljóm­sveitin spilaði á Austur­velli á 17. júní, það er fyrir mína tíð, en ég man eftir gríðar­lega fjölmennum samkomum Arnarhóli. Bessa Bjarna­syni og Árna Tryggsyni á sviðinu í gervi Mikka refs og Lilla Klifur­músar. En Baldur og Konni voru fyrir minn tíma. (sjá mynd)“

Skjáskot/Þjóð­minja­safn Íslands

Tímarnir breytast: Þróun hátíðarinnar samkvæmt Agli

  • Blóma­tíminn á 20. öld: Börn mættu prúðbúin í miðbæinn, margir strákar í týróla­höttum og stelpur í upphlut eða sport­sokkum. Sölutjöld íþrótta­félaga úðuðu og grúðu um allan bæ.
  • Skemmtana­hald á sviði: Gríðar­legur mann­fjöldi safnaðist saman á Arnarhóli þar sem þjóð­þekktir leikarar, eins og Bessi Bjarnason og Árni Tryggvason í gervi persóna úr Kardemommubænum, skemmtu fólki.
  • Götu­dansarnir frægu: Gömlu dansarnir fóru fram við Alþingis­húsið, dægur­tónlist var á Lækjar­torgi og unglingar söfnuðust saman við Morgunblaðs­húsið þar sem stórar hljóm­sveitir eins og Flowers spiluðu.

„Um kvöldið var dansað í Miðborginni. Ef ég man rétt voru gömlu dansarnir á planinu við Alþingis­húsið, gjarnan hljómsveit Guðjóns Matthíassonar. Léttar hljóm­sveitir eins og Svavars Gests og Ólafs Gauks voru Lækjar­torgi en unglingarnir fengu sína músík framan við Morgunblaðs­húsið.Ég var miðbæjar­barn, átti heima við gamla kirkju­garðinn og var farinn að fara einn í bæinn 6-7 ára gamall. Ég man sérstak­lega vel eftir hljóm­sveitinni Flowers að spila við Mogganhúsið. Þar voru í hópi musíkanta Björgvin Halldórsson, Karl Sighvatsson og Gunnar Jökull. Mér fannst það stórkostleg upplifun.

Það var vesen með fyllerí, vissulega. Keyrði víst um þverbak einhver ár og ég barnið man eftir blindfullum unglingum. Nýstúdentar útskrifuðust 17. júní, settu svip á bæinn og voru glaðir og reifir.Svo ákveðið að grípa í taumana og þá var beitt heldur betur skringi­legum aðferðum. Það var mikið um boð og bönn á Íslandi á þessum árum. Veitingar utandyra þekktust til dæmis ekki, það var harðbannað.“

Forsjárhyggja og boð og bönn

Á sjöunda og áttunda áratugnum gripu yfirvöld til róttækra aðgerða til að takmarka drykkju og mann­söfnuð í miðbænum. Hátíðar­höldin voru meðal annars flutt tíma­bundið inn á Laugar­dalsvöll í tvö ár, þar sem dagskráin fólst í ávörpum og íþrótta­mótum, sem mörgum þótti hund­leiðinlegt. Seinna voru dans­leikir kvöldsins færðir í skóla­portin til að dreifa mann­fjöldanum.

„Í tvö ár á sjöunda áratugnum voru hátíðar­höldin færð inn í Laugardal. Reyk­víkingum var smalað á Laugar­dalsvöllinn, látnir hlusta þar á ávarp fjallkonunar og horfa á kúluvarp. Svo var sundmót í nýju Laugardags­lauginni. Ég man að þetta var alveg hund­leiðinlegt. Þetta var á tíma þegar borgar­stjórninni var í raun meinilla við Miðbæinn; vildi helst setja hann niður í Kringlu­mýri og kalla Nýja Miðbæinn. Forsjár­hyggjan reið heldur ekki við einteyming. Eftir 1970 voru dans­leikirnir að kvöldi 17. júní færðir á lóðir skólanna í bænum til að koma í veg fyrir mann­söfnuð í Miðborginni. Það var líka hund­leiðinlegt, engin stemming þótt ágætar hljóm­sveitir træðu upp stundum upp í skóla­portunum.

Svo var aftur farið með hátíðina niður í Miðbæ. Það gekk mestanpart slysa­laust. Borgar­búar fjöl­menntu á bæði dag- og kvöld­skemmtanir og það var minna um fyllerí en áður. En einhvern veginn fór að fjara undan 17. júní og þegar komið var fram á nýja öld var líkt og áhuginn á hátíðinni væri hverfandi. Áherslan hjá borgar­yfirvöldum færðist yfir á Gay Pride og Menningar­nótt en 17. júní sat á hakanum. Það var látið nægja að halda dálitla hátíð fyrir börnin – nokkra hoppukastala – en kvöld­skemmtanirnar voru með öllu aflagðar. Þannig er það nú og 17. júní er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem eitt sinn var. Ég fylgdist með frekar fámennri skrúð­göngu fara niður Lauga­veginn. Kannski var gleðilegast við gönguna hversu margir innflytjendur voru í henni – með íslenska fána. En það heyrðist ekki mikil tónlist. Bara ein lúðra­sveit fremst og þátt­takendur voru ekki ýkja líflegir.“

Egill kallar eftir breytingum og segir að lokum.

„Væri kannski vert að gera betur á þessum hátíðisdegi? Hafa meira fjör? Fjöl­breyttari skemmtun? Fyrir unga og aldna? Ekki bara vegna þess að hann er dagur þjóðarinnar heldur lika vegna þess að gott er að fagna saman snemm­sumars þegar landið er orðið grænt og ljúft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim