Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hrottalegt ofbeldi 18 ára pilts á Austfjörðum: Áreitti, kjálkabraut og nauðgaði, allt sama daginn

Héraðsdómur Austurlands
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Wiktor Tomasz W. Tómasson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðis­lega áreitni og nauðgun. Var ungur aldur Wiktors metið til refsilækkunar sem og að dregist hefur að taka mál hans fyrir hjá dómstólum. Wiktor var dæmdur í héraðs­dómi Austur­lands í nóvember 2019. Wiktor framdi kynferðis­ofbeldið í nóvember 2017. Wiktor Tomasz var þá 18 ára. Hann áfrýjaði dómnum og var það ekki fyrr en á þessu ári sem málið var tekið fyrir hjá Lands­rétti.

Wiktor var ákærður í tveimur liðum. Hann var dæmdur fyrir kynferðis­lega áreitni með því að fara inn í herbergi til ungrar konu þar sem hún svaf. Sakaði konan Wiktor um að hafa sleikt og sogið á henni aðra geir­vörtuna. Þegar unga konan vaknaði yfirgaf Wiktor herbergið.

Wiktor kom aftur inn í herbergið þegar konan hafði sofnað á ný. Þar lagðist hann upp í rúm hjá konunni og nauðgaði henni. Í dómnum segir að konan hafi ekki getað varist ofbeldis­manninum sökum svefn­drunga og ölvunar. Wiktor og konan þekktust í raun ekkert á þessum tíma.

Í dómnum kemur fram að eftir lokun skemmtistaðar fór Wiktor Tomasz að heimili sínu. Þar bjó þolandinn ásamt dóttur sinni. Fleiri bættust í hópinn og varði samkvæmið í allnokkurn tíma. Konan sem var þolandi í málinu lagðist til svefns en Wiktor var á neðri hæð hússins ásamt ungum manni. Þar kastaðist í kekki á milli þeirra og endaði rifrildið með því að Wiktor sló í átt að unga manninum sem kjálka­brotnaði. Lögregla og sjúkra­liðar voru kölluð á vettvang kl: 08:14 og var pilturinn fluttur á heilsu­gæslustöð og þaðan með sjúkra­flugi á Land­spítalann.

Lögregla ræddi við Wiktor Tomasz á vettvangi en hann var ekki hand­tekinn. Í gögnum segir frá því að á þeirri stundu hafi ákærði verið „rólegur, en sjáanlega ölvaður. Hann var stöðugur í göngulagi og hreyfingum og skýr í talanda.“

Lögregla gerði sér aftur ferð í húsið kl: 09:28 til að ljósmynda­vettvanginn vegna líkams­árásarinnar. Eftir að lögregla yfirgaf svæðið beitti Wiktor Thomasz stúlkuna kynferðis­ofbeldi. Konan kærði og þegar lögregla óskaði eftir að Wiktor gæfi sýni til lífsýna­rannsóknar, neitaði hann og varð að beita dóms­úrskurði til að hægt væri að bera saman lífsýni sem fundust í rúmlaki brotaþola á ætluðum brota­vettvangi.

Unga konan fékk sálfræði­aðstoð eftir hinn hræðilega glæp og glímdi hún við áfalla­streitu­röskun. Hún tók síðan miklum framförum og segir í vottorði:

„Hún hefur tek­ist á við van­líðan sína af miklu hug­rekki og notað upp­byggi­leg bjarg­ráð. Líðan hennar hefur farið batn­andi að hennar mati og smám saman hefur dregið úr áfallastreitu­ein­kennum.“

Á öðrum stað vott­orðsins segir:

„Allt viðmót [stúlkunnar] bendir til þess að hún hafi upplifað ógn, bjargar­leysi og viðbjóð í meintu kynferðis­broti. Sálræn einkenni hennar í kjölfar áfallsins samsvara einkennum sem eru þekkt hjá fólki sem hefur upplifað alvarleg áföll eins og líkams­árás, nauðgun, stórslys eða hamfarir. Niður­stöður sjálfsmats­kvarða samsvöruðu vel frásögnum hennar í viðtölum. Hún virtist ávallt hrein­skilin, trúverðug og samkvæm sjálfri sér.“

Wiktor Tomasz var dæmdur í tveggja ára fangelsi í héraðs­dómi Austur­lands og til að greiða stúlkunni 1.5 milljónir króna í miska­bætur. Wiktor áfrýjaði til Lands­réttar sem birti dóm sinn í dag. Að áliti dómsins þótti fram­burður stúlkunnar trúverðugur og skilmerki­legur í öllum megin atriðum. Þá hafi frásögn hennar verið ítarleg og einlæg. Wiktor Tomasz þótti hins vegur ekki trúverðugur og reikull í framburði.

Þar er niður­staðan sú sama, tveggja ára fangelsi. Bætur til stúlkunnar eru þó 300 þúsund krónum hærri.

Í dómnum kemur fram að Wiktor hafi verið dæmdur í 45 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir að kjálka­brjóta unga piltinn, þann sama dag og hann nauðgaði stúlkunni. Einnig var hann þann 1. nóvember 2018 dæmdur til að greiða sekt til ríkis­sjóðs vegna fíkniefnaksturs.

Wiktor var dæmdur til vægari refsingar vegna ungs aldurs en hann var 18 ára þegar hann braut kynferðis­lega á stúlkunni. Rannsókn lögreglu lauk vorið 2018 og ljóst að málið dróst hjá ákæru­valdinu.

Niður­staðan var því eins og áður segir tveggja ára fangelsi, óskilorðsbundið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim