Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Laufey Ebba samfélagsmiðlastjarna sökuð um dýraníð: „Hef fengið ógrynni af hatursskilaboðum“

Sam­fé­lags­miðla­stjarnan og áhrifa­vald­ur­inn, Laufey Ebba Eðvarðs­dóttir, fékk yfir sig hrúgu af hat­urs­skila­boðum og ásak­anir um dýra­níð eftir að hafa birt sjálf mynd­band á TikTok af sér og hund­inum hennar.

Mynd­bandið fór á flug og rataði bæði inn í fjöl­mennan hóp dýra­eig­enda, Hunda­sam­fé­lagið, og inn í hóp­inn Nafn­greinum og mynd­birtum dýra­níð­inga! á Faceook. Á TikTok hins vegar, hvar Laufey Ebba er einn vin­sæl­asti Íslend­ing­ur­inn, fékk áhrifa­vald­ur­inn fljót­lega skammir eftir að mynd­bandið birt­ist. „Þið eruð ógeðs­leg og ég vona að hund­ur­inn verður tek­inn frá þér,“ sagði einn gagn­rýn­and­anna.

Mynd­bandið er í raun klippa í beinni útsend­ingu og á henni sést Laufey Ebba láta hund­inn sinn detta í gólfið heima hjá sér. Fjöl­margir hunda­eig­endur risu upp á aft­ur­lapp­irnar vegna klipp­unnar. Hulda nokkur er ein þeirra. Dýraníð. Íslenskur „áhrifa­valdur“ hendir hund­inum sínum í gólfið,“ segir Hulda.

Inni í hunda­sam­fé­lag­inu kemur Laufey Ebba sjálf inn og útskýrir sína hlið. „Þetta var hvat­vísi og mis­tök. Tveimur sek­úndum seinna segir ég „Vó, þetta átti ekki að vera svona fast.“ Ég veit þetta var rosa­lega heimsku­legt og ég skamm­ast mín fyrir þetta. Ég er góð við hund­inn minn og hún er það mik­il­væg­asta í mínu lífi,“ segir Laufey.

Ég vil minna á það sem ég hef oft sagt, það er allt miklu betra ef við erum bara næs.

Gréta spyr hins vegar. „Hver gerir svona við það mik­il­væg­asta í lífi sínu?,“ spyr Gréta. Og Jan spyr líka. „Var þetta þetta LÆKANNA virði?“ Margrét nokkur á varla til orð. „Full­orðin mann­eskja getur ekki stílað þetta á hvat­vísi/mis­tök. Ömurlegt að sjá svona fram­komu við dýr,“ segir Margét.

Það er líka margir sem stíga upp Laufey til varnar. Það gerir til að mynda Ásdís María. „Finnst varla hægt að kalla þetta dýra­níð, hún færði sig vilj­andi frá hund­inum svo hann datt, ómeiddur. Margir hlæja af klaufa­skap í dýr­unum sínum. Þó svo mér finn­ist þetta per­sónu­lega ekki fyndið mynd­band ekki ekki hægt að kalla mann­eskj­una dýra­níð­ing. Alls konar alvöru dýra­níð­ingar úti sem reyna að meiða dýr. Laufey hefur staðið á bak­við börn sem lenda í net­ein­elti svo ég stór­ef­ast að hún sé að níð­ast á hund­inum sínum,“ segir Ásdís.

Laufey steig svo sjálf fram og útskýrði klipp­una í eigin færslu á TikTok. Það seg­ist hún hafa verið kölluð öllum illum nöfnum eftir birt­ingu mynd­bands­ins. „Mynd­bandið er klippt þannig að það lúkkar eins og mér sé alveg sama og ég hlægji bara. En hefði teipið rúllað aðeins lengur þá sést að ég segi: „Fyr­ir­gefðu elsku ástin mín þetta átti ekki að vera svona fast“, því þetta átti ekki að vera svona fast. Síðasta hálfa sól­ar­hring­inn hef ég verið að fá ógrynni af hat­urs­skila­boðum þar sem ég er kölluð öllum illum nöfnum. Ég tek mál­efna­legri gagn­rýni fagn­andi en þetta hefur farið út fyrir öll vel­sæm­is­mörk þar sem bæði er ráð­ist á mig og alla í kringum mig,“ segir Laufey og bætir við:

„Ég mun að sjálf­sögðu halda áfram að deila með ykkur úr líf­inu en núna þarf ég aðeins að jafna mig og stíga til baka og anda inn í þetta. Ég vil minna á það sem ég hef oft sagt, það er allt miklu betra ef við erum bara næs. Við erum öll mann­leg og við gerum öll mis­tök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas