Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ung kona dæmd fyrir aðild að stórfelldu kókaínmáli

Dómurinn leit til játn­ingar og ungs ald­urs kon­unnar við ákvörðun refs­ingar en taldi brotið alvar­legt vegna magns og styrk­leika efn­anna

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur var Chayma Rín Hani dæmd í 14 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots. Mynd: Víkingur

Chayma Rín Hani hefur verið dæmd í 14 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots. Hún ját­aði að hafa tekið þátt í til­raun til að koma tæp­lega 700 grömmum af kóka­íni í dreif­ingu hér á landi.

Samkvæmt ákæru reyndi Chayma, ásamt öðrum ein­stak­lingi, að taka á móti 690,9 grömmum af kóka­íni með 95 pró­senta styrk­leika þann 27. mars 2025. Fíkni­efnin voru falin í hliðum pappa­kassa sem sendur var með FedEx frá Dóminíska lýð­veld­inu.

Send­ingin var stöðvuð af banda­rískum yfir­völdum sem fjar­lægðu fíkni­efnin áður en hún hélt áfram til Íslands.

Chayma tók við pakk­anum í Reykja­vík og afhenti hann öðrum ein­stak­lingi sem var síðar hand­tek­inn af lög­reglu.

Fékk greitt fyrir aðkomuna

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn til þess að Chayma væri ung að árum og hefði játað brot sitt ský­laust. Þá þótti ekk­ert benda til þess að hún hefði átt fíkni­efnin sjálf, heldur hefði hún tekið að sér að koma send­ing­unni áfram gegn greiðslu.

Dómurinn taldi brotið engu að síður alvar­legt vegna mik­ils magns og styrk­leika fíkni­efn­anna.

Refs­ingin var skil­orðs­bundin til þriggja ára. Chayma var jafn­framt gert að greiða sam­tals 1.527.780 krónur í sak­ar­kostnað, þar með talda þóknun verj­anda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas