Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Áslaug Arna ráðherra Sjálfstæðisflokksins: „Það ríkir sátt í samfélaginu“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Ráð­herr­ann með langa tit­il­inn, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, spyr hvort til séu lausnir í vösum skatt­greið­enda.

Bætir þessu við:

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ráð­herra háskóla, iðn­aðar og nýsköp­unar.

„Eitt mik­il­væg­asta verk­efni stjórn­mála­manna er að sýna það í verki að okkur sé alvara með það að ná verð­bólgu niður. Allir þeir sem koma að hag­stjórn lands­ins: Seðla­bank­inn, aðilar vinnu­mark­að­ar­ins og hið opin­bera, þurfa að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar. Hvað ríkið varðar er ljóst að draga þarf úr rík­is­út­gjöldum og hag­ræða enn frekar í opin­berum rekstri. Það ætti þó ekki að vera skamm­tíma­mark­mið, heldur við­var­andi verk­efni í rekstri hins opin­bera.“

Bætir meiru við:

„Þarf ekki að fara í blóðprufu á morgun þó ég dansi mikið í kvöld“ seg Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd/skjá­skot. Instagram.

„Meg­in­þorri auk­inna rík­is­út­gjalda hefur á liðnum árum runnið til heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála og það ríkir nokkur sátt í sam­fé­lag­inu um þá til­högun. Rík­is­út­gjöld geta þó ekki vaxið enda­laust og alls ekki á þeim hraða sem þau hafa gert á liðnum árum. Áfram þurfum við að leita leiða til að efla þessa þjón­ustu án þess að útgjöld til mála­flokk­anna vaxi út í hið óend­an­lega.

Við munum ekki standa undir þeirri grunn­þjón­ustu og þeim gæðum sem við gerum kröfu um, nema með því að inn­leiða nýjar lausnir og nýjan hugs­un­ar­gang sam­hliða. Við þurfum að virkja einka­fram­takið og gefa nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum svig­rúm til að byggja upp starf­semi og þjón­ustu.

Bætir enn meiru við:

Áslaug Arna og Bjarni Ben á góðri stundu. Horfa fal­lega og með mann­kær­leika í augum á hvort annað.

„Það er eng­inn skortur á því hvernig stjórn­mála­menn sjá fyrir sér að auka tekjur hins opin­bera. Það verður alltaf ein­hver atvinnu­grein sem verður í sigt­inu og sjálf­sagt var það rétt lýs­ing þegar einn flokk­ur­inn tal­aði um fjöl­breyttar hug­myndir um aukna skatt­heimtu, sem hlað­borð sem hægt væri að velja af.

Þó svo að stjórn­mála­menn, jafn­vel þeir sem gefa sig út fyrir að vita meira um hag­stjórn en aðrir, tali eins og upp­sprettur skatt­heimtu séu óend­an­legar – þá er það ekki svo. Það felst engin lang­tíma­lausn í því að lofa gulli og grænum skógum og ætl­ast síðan til þess að ein­hverjir aðrir borgi.

Til við­bótar því að gefa einka­að­ilum svig­rúm til að vaxa og dafna getur rík­is­valdið gert annað og meira en að bara styðja nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki fjár­hags­lega eða búa þeim til skil­virkan lag­ara­mma. Ríkið getur keypt af þeim vörur og þjón­ustu og látið af gam­al­dags rekstr­ar­formi sem felur ekki bara í sér sóun heldur tekur súr­efnið af frum­kvöðlum.“

Og, jú, þið giskuðuð rétt; hún bætir enn við; nú loka­orðin:

Áslaug Arna segir Ísland vera land tæki­fær­anna og að hér sé allt í góðum málum.

Við sjáum því oft haldið fram að lægri skattar feli í sér að það sé minna til skipt­anna eða að skerð­ing verði óhjá­kvæmi­lega á þjón­ustu hins opin­bera. Að sama skapi halda sumir því fram að hag­ræð­ing og bætt með­ferð á fjár­munum hins opin­bera feli alltaf í sér skerð­ingu á þjón­ustu. Í því felst mikil þröng­sýni og líka upp­gjöf – enda er stað­reyndin sú að oft er hægt að veita betri þjón­ustu fyrir minna fé með nýjum lausnum. Um það geta frum­kvöðlar og þeir sem nýta tækn­ina á sínum vinnu­stöðum, vitnað. Með lægri sköttum búum við þvert á móti til hvata fyrir fólk og fyr­ir­tæki, til að gera meira og gera betur á sínum sviðum. Í því felst ávinn­ingur fyrir allt sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas