Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Harmleikur í Essex: Þrjú úr sömu fjölskyldu drukknuðu

Ellefu ára drengur sem barist hefur fyrir lífi sínu í viku er nú lát­inn.

Mæðgurnar
Mæðgurnar Mæðgurnar drukkn­uðu þann 22. júlí Mynd: Samsett

Ellefu ára drengur sem var fluttur lífs­hættu­lega slas­aður á sjúkra­hús eftir að hafa nærri drukknað við strönd í Essex á Englandi er lát­inn. Þar með hafa þrír úr sömu fjöl­skyldu lát­ist af völdum slyss­ins.

Dreng­ur­inn, Musa Ahmed, var í sjónum ásamt frænku sinni, Sameehu Rahman, 15 ára, móður hennar, Shelinu Rahman, 41 árs, og þremur öðrum fjöl­skyldu­með­limum þegar þau lentu í vand­ræðum í sjónum 22. júlí.

Sameeha og Shelina, sem voru frá Ilford í aust­ur­hluta Lundúna, lét­ust á vett­vangi en Musa var fluttur með þyrlu á sjúkra­hús þar sem ástand hans var lýst lífs­hættu­legu. Lög­reglan í Essex stað­festi á mið­viku­dag að hann hefði lát­ist.

Lög­reglan segir að allir fjöl­skyldu­með­lim­irnir hafi lagt sig fram um að hjálpa hver öðrum þegar slysið varð. Nokkrir aðrir úr fjöl­skyld­unni voru einnig fluttir á sjúkra­hús en eru nú á bata­vegi.

Rannsókn slyss­ins stendur enn yfir. Al Pitcher, rann­sókn­ar­lög­reglu­full­trúi sem fer fyrir rann­sókn­inni, segir fjöl­skyld­una hafa verið að njóta sam­veru­stundar á strönd­inni þegar harm­leik­ur­inn átti sér stað.

„Við höldum áfram að styðja fjöl­skyldu Shelinu og Sameehu á þessum afar erf­iðu tímum. Við vinnum nú að því að upp­lýsa hvað gerð­ist og rann­sókn máls­ins heldur áfram,“ sagði hann.

Lög­reglan hefur rætt við fjölda vitna og vinnur meðal ann­ars með slökkvi­liði, sveit­ar­fé­lag­inu og strand­gæsl­unni við rann­sókn­ina.

Michelle Sparks, lög­reglu­stjóri í Colchester, þakk­aði almenn­ingi fyrir við­brögðin.

„Margir úr hópi almenn­ings hlupu til að aðstoða fjöl­skyld­una og ég vil þakka þeim fyrir hug­rekki og óeig­in­girni. Við höfum einnig séð mikla sam­stöðu og samúð í kjöl­far þessa hörmu­lega atburðar. Á slíkum stundum sést styrkur sam­fé­lags­ins,“ sagði hún.

Neyð­ar­þjón­usta var kölluð á vett­vang síð­degis 22. júlí eftir að til­kynnt var um að nokkrir hefðu lent í vand­ræðum í sjónum við West Mersea-strönd í Essex. Einn var fluttur með þyrlu á sjúkra­hús og þrír með sjúkra­bíl.

Faðir Musa, Shahin Ahmed, hefur í kjöl­farið kallað eftir end­ur­skoðun á örygg­is­ráð­stöf­unum á West Mersea-strönd. Hann segir að bæta þurfi björg­un­ar­búnað og setja upp skýr­ari við­vör­un­ar­skilti.

„Ekkert getur tekið burt þann sárs­auka sem við finnum núna, en við vonum að lær­dómur verði dreg­inn af þessu svo hægt verði að koma í veg fyrir að svona harm­leikur end­ur­taki sig,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri