Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Bjarni eignast óvin

Sólveig Anna Jónsdóttir. Mynd Lára Garðarsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd Lára Garð­ars­dóttir

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra er kjark­maður. Það kom ágætlega í ljós í gær þegar hann blandaði sért í umræðuna um úrsögn Eflingar úr Starsfsgreinasambandi og benti réttilega á að einungis brotabrot af af félags­mönnum hefði tekið ákvörðunina og væri dæmi um sambands­leysi forystu og félags­fólks. Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar, var snögg að bregðast við og furðar sig á áhyggj­um fjár­mála­ráðherra sem hún kallar yfir­framkvæmda­stjóra auðstéttarinnar. Hún boðar frekari átök og ætlar að virkja félags­menn til átaka og láta kjósa um verkföll.

Á einhverjum tíma­punkti má Bjarni reikna með að þurfa að takast á við Eflingu fyrir hönd ríkisins. Hann áttar sig ekki á því að hver af öðrum hafa andstæðingar Sólveigar fallið í valinn. Aðalsteinn Leifsson, ríkis­sátta­semjari og frændi Sólveigar, þurfti að víkja af stóli og var niður­lægður. Halldór Benjamín Þorbergsson, talsmaður vinnu­veitenda, er á förum, laskaður eftir átök. Þá er höfuð­fjandi Sólveigar Önnu, sá öflugi Vilhjálmur Birgisson, með klofið og brennandi Starfsgrein­sambandið undir fótum sér eftir að hafa lent í  ónáð fyrrum vinkonu sinnar. Ekki má svo gleyma að Sólveig hefur afgreitt fjölda samherja sinna í Eflingu og gert þá útlæga.

Þótt Sólveig Anna hafi ekki náð teljandi árangri í kjara­málum fyrir félags­fólk sitt er hún sérfræðingur í að búa til hávaða og dugleg við að slátra óvinum sínum. Bjarni ætti að gaumgæfa það áður en hann heldur áfram að pönkast á baráttu­konunni skæðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Slúður