Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Sex ára stúlka föst í bifreið eftir árás Ísraelshers – Ekkert vitað um afdrif björgunarmanna

Sex ára palest­ínsk stúlka er föst í bíl með látnum fjöl­skyldu­með­limum sínum, eftir árás ísra­elska hers­ins. Rauði hálf­mán­inn hefur misst sam­bandið við sjúkra­liða sem gerðu til­raun til að bjarga stúlkunni seint á mánu­dag­inn.

Hjálp­ar­sam­tökin Rauði hálf­mán­inn í Palest­ínu hefur misst sam­band við sjúkra­liða sam­tak­anna sem gerðu til­raun seint á mánu­dag­inn, til að bjarga sex ára stúlku úr bif­reið sem varð fyrir árás Ísra­els­hers í Gaza-borg en for­eldrar frænku hennar voru drepin í árásinni, ásamt fjórum börnum sínum.

Rauði hálf­mán­inn fékk sím­tal frá hinni 16 ára Layan Hamadeh, frænku hinnar sex ára Hind Hamadeh, og bað í ofvæni um aðstoð því bíll­inn væri umkringdur skrið­drekum og her­mönnum. Nokkrum sek­úndum eftir að Layan hóf sím­talið heyrð­ust fjöl­mörg skot­hljót og óp í stúlkunni. Eftir skot­hljóðin, hætti hún að svara.

Sjúkra­bíll var sendur á stað­inn seint á mánu­dags­kvöldið en hefur ekki snúið aftur, sam­kvæmt Rauða hálf­mán­anum, en sam­tökin hafa enn ekk­ert heyrt frá sjúkra­lið­unum.

„Upp­lýs­ingar um afdrif þeirra eru enn á huldu og við höfum miklar áhyggjur af örlögum þeirra, óviss um hvort þeim hafi tek­ist að koma henni í burtu eða ekki,“ sagði í yfir­lýs­ingu Rauða hálf­mán­ans.

Blaða­maður fyrir The New Arab á Gaza stað­festir að árásin hafi gerst nærri Íslamska háskól­anum á Gaza en það svæði hefur orðið fyrir gegnd­ar­lausu sprengju­regli Ísra­els­hers frá upp­hafi stríðs­ins 7. októ­ber. Brak úr rústum húsa á svæð­inu liggur víða á vegum hverf­is­ins sem gerir erfitt fyrir sjúkra­bíla að kom­ast að særðum.

Hind litla var með frænda sínum Bashar Hamadeh og fjöl­skyldu hans, þegar árás var gerð á bíl þeirra en öll fjöl­skylda Bashars var drepin í árásinni, eig­in­kona hans og fjögur börn. Hind var sú eina sem lifði árás­ina af og beið eftir björgun hjálp­ar­sam­tak­anna.

Frá byrjun stríðs­ins þann 7. októ­ber hefur Ísra­els­her hvað eftir annað gert árásir á sjúkra­bíla, sjúkra­liða, lækna og spít­ala. Flest sjúkra­hús á Gaza eru þegar hætt að starfa vegna sprengju­árása og birgða­skorts eftir nærri fjög­urra mán­aða harðar árásir Ísraela.

Meira en 1.100 heil­brigð­is­starfs­fólk hefur verið drepið eða sært á Gaza, í árásum Ísraela en að minnsta kosti 26.700 Palest­ínu­menn hafa verið drepnir, flestir þeirra konur og börn.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá umfjöllun Al Jazeera um Hind litlu en les­endur eru varaðir við mynd­skeið­inu, það er ekki fyrir við­kvæma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.
Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé