Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Segir Samkeppniseftirlitið hafa farið út fyrir valdheimildir sínar

Hörður Arnarson
Hörður Arnarson Er fyrr­ver­andi for­stjóri Lands­virkj­unnar Mynd: Landsvirkjun

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, gagn­rýnir fyr­ir­komu­lag sam­keppn­is­eft­ir­lits hér á landi og telur til­efni til að end­ur­skoða hvernig aðskiln­aði rann­sóknar, mats á ætl­uðum brotum og ákvörð­unar um við­ur­lög er háttað. Þetta kemur fram í aðsendri grein hans í Morg­un­blað­inu.

Tilefnið er rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á þátt­töku Lands­virkj­unar í útboðum Lands­nets á raf­orku vegna flutn­ings­tapa á árunum 2017 til 2021. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði Lands­virkjun um 1,4 millj­arða króna en áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála felldi ákvörð­un­ina úr gildi.

Hörður segir Lands­virkjun hafa talið ljóst við rann­sókn máls­ins að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði farið út fyrir vald­heim­ildir sínar. Eft­ir­litið hafi jafn­framt tor­tryggt aðgerðir fyr­ir­tæk­is­ins til að tryggja orku­ör­yggi og vinna sam­keppn­is­rétt­ar­á­hættu­grein­ingu.

„Reynslan af þessu máli gefur hins vegar til­efni til að velta fyrir sér hvort núver­andi fyr­ir­komu­lag sam­keppn­is­eft­ir­lits tryggi nægi­legan aðskilnað rann­sóknar, mats á ætl­uðu broti og end­an­legrar ákvörð­unar um brot og við­ur­lög,“ skrifar Hörður.

Hann lýsir hlut­verki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins með orð­unum „rann­sakar, ákærir og dæmir“ og telur það vekja spurn­ingar um hvort nægi­lega skýr skil séu á milli hlut­verk­anna.

Hörður segir Lands­virkjun hafa tekið þátt í útboðum Lands­nets til að tryggja raf­orku­ör­yggi. Ef Landsnet fengi ekki næga raf­orku til að mæta flutn­ings­töpum gæti raf­orku­kerfið hrunið.

Hann segir ann­marka rann­sókn­ar­innar ekki aðeins hafa snúið að forms­at­riðum. Markaðir hafi ekki verið skil­greindir með full­nægj­andi hætti og rann­sókn á skil­yrðum og mögu­legum skað­legum áhrifum hafi jafn­framt verið ófull­nægj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum