Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Meint líkamsárás hæstaréttarlögmanns: Brákuð rifbein, blóðugt nef og áverkar á hálsi

Hæstiréttur Íslands
Hæsti­réttur Íslands

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá í gær hefur hæsta­rétt­ar­lög­maður verið sak­aður um stór­fellda lík­ams­árás sem átti sér stað fyrr í mán­uð­inum. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs á lög­mað­ur­inn nú yfir höfði sér kæru en er hann sagður hafa gengið í skrokk á karl­manni á vinnu­stað fórn­ar­lambs­ins í mið­borg Reykja­víkur.

Ágrein­ing­ur­inn sem varð til­efni atviks­ins er sagður per­sónu­legur og snýr að náinni vin­áttu karls og konu sem eru í eig­enda­hópi einnar stærstu lög­manns­stofu lands­ins þar sem yfir 50 manns starfa. Meint fórn­ar­lamb er eig­in­maður kon­unnar, versl­un­ar­eig­andi í Reykja­vík. Árás­armað­ur­inn meinti er með­eig­andi kon­unnar að lög­manns­stof­unni. Málið er mjög við­kvæmt en meintur ger­andi er í fram­línu stétt­ar­innar og hefur setið í ábyrgð­ar­stöðu fyrir Lög­manna­fé­lag Íslands.

Í fyrri frétt Mannlífs var greint frá því að þol­and­inn hafi nef­brotnað í meintri árás. Það mun ekki vera rétt en hann hlaut, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, blóð­uga áverka á nefi, brákuð rif­bein og áverka á hálsi. Leitaði mað­ur­inn á bráða­deild strax í kjöl­far árás­ar­innar. Vitni eru að atburð­inum.

Mannlíf hefur ítrekað reynt að ná tali af lög­mann­inum og þriðja aðila máls­ins án árang­urs. Fólkið hefur hvorki svarað skila­boðum né sím­tölum. Þol­and­inn hefur kosið að tjá sig ekki opin­ber­lega um málið.

Meintur ger­andi er sagður hafa við­ur­kennt að hafa tek­ist á við mann­inn og fellt hann í gólfið en heldur því fram að frum­kvæði átak­anna hafi verið hjá hinum fallna. Þá hafnar hann því að hafa valdið mann­inum skaða. Verði hann sak­felldur fyrir stór­fellda lík­ams­árás kostar það mann­inn missi lög­manns­rétt­inda. Málið hefur þegar klofið tvær fjöl­skyldur.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs mun verða lögð fram kæra hjá lög­regl­unni vegna þessa í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum