Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Jens iðar í skinni

Jens Garðar Helgason
Jens Garðar Helgason Mynd: Víkingur

Það sverfur að Guðrúnu Hafsteins­dóttur, formanni Sjálfstæðis­flokksins, í þeim fylgis­raunum sem blasa við. Guðrún hafði yfir sér afar góða áru góðmennsku og hlýju og þótti framan af vera yfirveguð í framkomu og tilsvörum. Draumurinn um aukið fylgi með nýjum formanni brást og liðhlaupar flykkjast yfir í Viðreisn og Miðflokkinn.

Hver könnunin af annarri leiðir í ljós hrun Sjálfstæðis­flokksins. DV birti um helgina könnun Maskínu sem sýnir stórtap flokksins í Hafnar­firði þar sem Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn með 24,5 prósenta fylgi. Þetta væri þó tap frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 29 prósenta fylgi. 

Tap Samfylkingar er þó grín miðað við tap Sjálfstæðis­flokksins sem mælist með 21,4 prósenta fylgi í Hafnar­firði en fékk 30,7 prósenta fylgi í kosningum. Könnun Maskínu um fylgi flokksins í Reykjavík felur einnig í sér ótíðindi þar sem 20 prósenta múrinn er í hættu þykir vera vísbending um hátt fall í vor. 

Guðrún þykir bera þess skýr merki að örvænting stjórni orðum hennar í auknum mæli. Eftir því var tekið að þegar falsfrétt Morgun­blaðsins um Hamasliða á Höfða­torgi birtist þá stökk Guðrún á vagninn og lét eins og fréttin væri sönn. Innan Sjálfstæðis­flokksins er vaxandi óþol vegna formannsins. Hermt er að hluti þing­flokks Guðrúnar tali um það í bakherbergjum að tími hennar sé liðinn.

Vara­formaðurinn, Jens Garðar Helgason, er sagður iða í skinninu að taka við af henni. Einn höfuð­fjandi Guðrúnar er Jón Gunnarsson alþingis­maður sem telur tíma formannsins vera að baki. Einhverjir innmúraðir Sjálfstæðis­menn vilja fá hann til frekari ábyrgðar í flokknum. Það hlakkar í andstæðingum hins forna flokks sem virðist vera í frjálsu falli ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Slúður