Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

„Það eru von­brigði, enda myndin með mik­il­væg skila­boð sem allir þing­menn ættu að láta sig varða.“

Alþingishúsið
Alþing­is­húsið Ekki einn þing­maður þáði boðsmiða Mynd: Víkingur

Verð­launa­heim­ild­ar­myndin NAZA eftir ísra­elsku leik­stjór­ana Yuval Abraham og Rachel Szor var sýnd í Bíó Paradís í gær­kvöldi en troð­fullt var á sýn­ing­unni. Athygli vekur að ekki einn þing­maður hafi nýtt boðsmiða sem þeim bauðst.

Courage International og Bíó Paradís stóðu fyrir sýn­ingu heim­ild­ar­mynd­ar­innar NAZA, sem vakið hefur mikla athygli á alþjóða­vett­vangi. Í mynd­inni er rætt við 24 upp­ljóstr­ara úr ísra­elska hernum og leyni­þjón­ustu hans, sem greina frá því hvernig gervi­greind var notuð við hern­að­ar­að­gerðir á Gaza, þar sem tug­þús­undir óbreyttra borg­ara hafa fallið. Myndin vekur áleitnar spurn­ingar um notkun gervi­greindar í hern­aði og hvernig þeir sem nýta tækn­ina meta mann­fall meðal almennra borg­ara.

Að lok­inni sýn­ingu mynd­ar­innar fóru fram pall­borðsum­ræður um efni hennar og þær sið­ferði­legu og sam­fé­lags­legu spurn­ingar sem hún vakti um notkun gervi­greindar í hern­aði og árásir Ísraela á óbreytta borg­ara á Gaza.

Meðal þátt­tak­enda var Emad Kiayei, með­stofn­andi Consortium for AI and Existential Risk (AiXist) og fram­kvæmda­stjóri Middle East Treaty Organization (METO). Hann hefur starfað við rann­sóknir og ráð­gjöf í sam­starfi við virta háskóla, þar á meðal Berkeley, Princeton og Columbia. AiXist rann­sakar hættur sem geta skap­ast þegar gervi­greind er nýtt í tengslum við ger­eyð­ing­ar­vopn.

Þá tóku þátt í umræð­unum Kolfinna Tóm­as­dóttir, með­stofn­andi AiXist, og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Aust­ur­landa­fræðum og arab­ísku við Háskóla Íslands og tengdur Palest­ínu­verk­efni skól­ans.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Courage International, stýrði umræð­unum.

Mannlíf heyrði í Þórhildi Sunnu og spurði hana hvort þing­mönnum og ráð­herrum hafi verið boðið á mynd­ina og ef svo væri, hversu margir hefðu þegið boðið. Ekki einn ein­asti þing­maður nýtti boðsmið­ann en tók fram að utan­rík­is­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er stödd erlendis. Þá er dóms­mála­ráð­herra, Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, einnig erlendis.

„Öllu þing­inu var boðið. Veit ekki til þess að neinn hafi mætt. Amk voru engir boðsmiðar nýttir af þing­mönnum. 5 mættu úr starfs­liði utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins,“ svar­aði hún í skrif­legu svari til Mannlífs.

Aðspurð um það hvað henni fynd­ist um þá stað­reynd að ekki einn þing­maður hafi þegið boðsmið­ann segir Þór­hildur Sunna það vera von­brigði. Hvetur hún Alþing­is­fólk til þess að fjöl­menna á auka­sýn­ingu á mynd­inni á sunnu­dag­inn.

„Það eru von­brigði, enda myndin með mik­il­væg skila­boð sem allir þing­menn ættu að láta sig varða. Hvet öll á Alþingi að fjöl­menna á sunnu­dag­inn til þess að öðl­ast dýpri skiln­ing á gang­virki þjóð­ar­morðs­ins á Gaza og þeirri stór­kost­legu hættu sem fylgir því að inn­leiða gervi­greind í hernað og örygg­is­gæslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl