Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Micah Richards sagt að þegja í knattspyrnuþætti: „Mynduð þið borga fyrir að horfa á Brest?“

Fyrrum knatt­spyrnu­mað­ur­inn Micah Richards átti erfitt með sig þegar hann var beð­inn um að þegja á meðan ræða átti um liði Brest í breskum knatt­spyrnu­þætti í gær­kvöldi en liðið mætti Barcelona í Meist­ara­deild Evrópu.

Þátta­stjórn­andi knatt­spyrnu­þátt­ar­ins, Kate Abdo byrj­aði á að segja Micah, sem lék á sínum ferli með Manchester City og Aston Villa, að hann mætti ekki tjá sig á meðan hún ræddi við knatt­spyrnu­goðsagn­irnar Thierry Henry og Jamie Carragher um gengi Brest í Meist­ara­deild­inni en liðið hefur komið mörgum hressi­lega á óvart í keppn­inni. Ástæðuna fyrir þagn­ar­skyld­unni sagði Kate vera þá að Micah væri ekki treystandi til að ræða um Brest á fag­legan hátt en nafnið á lið­inu minnir óneit­and­lega á enska orðið Breast, sem á íslensku þýðir brjóst.

Við tók síðan drep­fyndin umfjöllun þeirra Kate, Thierry og Jamie sem léku sér að því að tala um liðið í tví­ræðnum tón og Micah engd­ist um á meðan.

Kate: „Eftir fjóra leiki, hverjum hér líkar við Brest?“ Bæði Thierry og Jamie voru fljótir að rétta upp hönd. Jamie bætti við: „Mér líkar formið á þeim“. Bætti síðan við og beindi orðum sínum að Thierry: „Heldurðu að það verði tveir frammi í kvöld hjá þeim?“ Thierry svar­aði: „Já, tvö stór pör …“.

Kate: „Mig langar að vita, hversu mikið hafið þið gaman af að horfa á Brest? Mynduð þið borga fyrir að horfa?“ Jamie: „Ég hef gert það“. Á þessu augna­bliki á Micah afar erfitt með að springa ekki úr hlátri en nær að halda hlátr­inum inni en Jamie hins vegar springur. Thierry segir þá: „Ég verð að bæta við að stærðin skiptir ekki máli, þau geta verið lítil [liðin] en samt staðið fyrir sínu“.

Kate: „Haldið þið að Brest sjá­ist í leiknum í kvöld?“

Jamie: „Ég vona það!“

Kate: „Haldið þið að Barcelona kom­ist fljótt yfir Brest í kvöld?“

Jamie: „Úff, ég held að þú hafir farið yfir strikið þarna!“

Við þetta springur Micah loks­ins og sagði: „Þið eruð að reyna að láta reka mig!“

Hér má sjá hið óborg­an­lega mynd­skeið af fífla­skapnum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Heimur

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baghaei, segir ásakanirnar tilhæfulausar.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér