Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Auglýsir eigið kampavín í greinum Moggans: „Karamellukenndir tónarnir vitna um tímans þunga nið“

Stefán Einar Stefánsson.
Stefán Einar Stef­áns­son.

Stefán Einar Stef­áns­son kampa­vínsinn­flytj­andi og fyrr­ver­andi frétta­stjóri við­skipta hjá Morg­un­blað­inu, hefur skrifað stórar vöru­kynn­ingar í síð­ustu tveimur Við­skipta­moggum. Varan sem hann hefur verið að kynna er kampa­vín sem hann flytur sjálfur inn.

DV fjallar um málið í flokknum Orðið á göt­unni, en þar er Stefán Einar kall­aður lífs­nautna­sér­fræð­ingur Morg­un­blaðs­ins og Við­skipta­mogg­ans. Vöru­kynn­ing­arnar, sem ekki eru merktar sér­stak­lega sem slíkar, eru báðar um freyði­vín sem fyr­ir­tæki Stefáns Einars, Kampa­víns­fjelagið og Co. ehf. flytur inn. Pistill­inn er undir nafn­inu Hið ljúfa líf en annar þeirra er seg­ist Stefán skrifa beint frá Champagne-hér­aði í Frakk­landi en undir nafni höf­undar í seinni pistl­inum má sjá tölvu­póst­fang Stefáns hjá mbl.is og má því með réttu titla hann sem blaða­mann Morg­un­blaðs­ins. Í pistl­unum mærir blaða­mað­ur­inn vínið sitt í hástert og segir meðal ann­ars: „Það var hátíð­legt að dreypa á þessu frá­bæra víni sem sann­ar­lega er við aldur en frísk­legt um leið. Kara­mellu­kenndir tón­arnir vitna um tím­ans þunga nið en frísk­leg sýran um gæði fram­leiðsl­unnar og þá mögu­leika sem vandað kampa­vín hefur til þess að geym­ast lengi og batna með árunum.“

Höfundur Orðið á göt­unni pistils­ins bendir á að árs­reikn­ingur frá kampa­víns­fé­lagi Stefáns hafi ekki enn verið birtur en hæð­ist svo að honum í næstu orðum: „Ekki kom fram í reikn­ingnum fyrir 2021 hvort ókeypis kynn­ingar í Við­skipta­mogg­anum hafi verið færðar til tekna á því ári en án efa verður svo í ár því vart fer strang­heið­ar­legur við­skiptasið­fræð­ing­ur­inn, lífs­nautna­sér­fræð­ing­ur­inn, blaða­mað­ur­inn og freyði­víns­inn­flytj­and­inn Stefán Einar að snuða keisar­ann um það sem keis­ar­ans er.“ Hann heldur áfram: „Óneit­an­lega hlýtur það samt að vera góð búbót fyrir vín­inn­flytj­and­ann Stefán Einar að geta nýtt sér tengslin við blaða­mann­inn Stefán Einar og fengið birtar áfeng­is­kynn­ingar og -aug­lýs­ingar á besta stað í eina dag­blaði lands­ins jafn­vel þótt fáir lesi það. Og það þótt áfeng­is­aug­lýs­ingar séu bann­aðar.“

Mögulega hefur Við­skipta­mogg­inn með þessum vöru­kynn­ingum brotið áfeng­is­lögin en í 20. gr. lag­anna stendur: Hvers konar aug­lýs­ingar á áfengi og ein­stökum áfeng­is­teg­undum eru bann­aðar. Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra með­ferð áfengis í aug­lýs­ingum eða upp­lýs­ingum um ann­ars konar vöru eða þjón­ustu.

 Með aug­lýs­ingu er átt við hvers konar til­kynn­ingar til almenn­ings vegna mark­aðs­setn­ingar þar sem sýndar eru í máli eða myndum áfeng­is­teg­undir eða atriði tengd áfeng­is­neyslu, svo sem áfeng­is­vöru­heiti eða auð­kenni, eft­ir­lík­ingar af áfeng­is­varn­ingi, spjöld eða annar svip­aður bún­aður, útstill­ingar, dreif­ing prent­aðs máls og vöru­sýn­is­horna og þess háttar.

 Bannið tekur með sama hætti til aug­lýs­inga sem ein­göngu fela í sér firma­nafn og/eða firma­merki áfeng­is­fram­leið­anda. Þó er fram­leið­anda sem auk áfengis fram­leiðir aðrar drykkj­ar­vörur heim­ilt að nota firma­nafn eða merki í tengslum við aug­lýs­ingu þeirra drykkja, enda megi aug­ljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skiln­ingi lag­anna og ekki vísað til hinnar áfengu fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar