Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Ung mótorkrossstjarna dó á æfingu: „Enginn hafði stærra hjarta eða meiri ákveðni en Jayo“

Ástr­alska mót­or­kross­stjarnan Jayden „Jayo“ Archer er lát­inn, aðeins 27 ára að aldri.

Jayden „Jayo“ Archer, sem þekktur er fyrir að ná fyrstu allra þre­földum bak­snún­ingi í mót­or­kross­keppni, lést 21. febr­úar af slys­förum er hann var að æfa bak­snún­ing­inn, sam­kvæmt ESPN. Hann var ein­ungis 27 ára gam­all.

„Jayo var ímynd ástríð­unnar, vinnu­sem­innar og ákveðn­innar,“ skrif­aði Nitro Circus, íþrótta­mið­ila­fyr­ir­tæki, stofnað af Travis Pastrana en Archer var partur af fyr­ir­tæk­inu, skrif­aði á Instagram. „Hann ýtti mörkum þess sem hægt var á tor­færu­hjóli upp í hæðir sem aldrei hafa sést áður. Hann hafði jákvæð áhrif á þá sem í kringum hann voru. Og umfram allt frá­bær mann­vera og vinur okkar allra.“

Og færslan hélt áfram: „Sendum hugs­anir okkar og ást til fjöl­skyldu og vina Jayo. Við elskum þig félagi. Hjólaðu í friði.“

Archer starf­aði fyrir Nitro Circus, sam­kvæmt ESPN, sem aðstoð­ar­vél­virki í nokkur ár áður en hann kom fram í fyrstu sýn­ingu sinni árið 2012. Í nóv­em­ber 2022 tryggði hann stöðu sína sem ein af rísandi íþrótta­stjörn­unum þegar hann var fyrstur til að takast með góðum árangri, að gera þre­faldan bak­snún­ing á tor­færu­hjóli, fyrir framan lif­andi áhorf­endur á Nitro World Games í Brisbane, Ástralíu.

„Ég get ekki lýst þess­ari til­finn­ingu,“ sagði Archer eftir vel heppn­aða frammi­stöðu sína, í við­tali við Nitro Circus. „Þetta er svo miklu meira en brella fyrir mig. Ég hef helgað allt líf mitt síð­ustu þrjú ár þess­ari stundu. Það voru margar hindr­anir og bein­brot og rot­högg, og ég myndi gera það 100 sinnum til að end­ur­upp­lifa það augna­blik aftur.“

Íþrótta­mað­ur­inn tók svo hljóð­nem­ann af frétta­mann­inum og bað kær­ustu sinnar, Beth King. Þau ætl­uðu að gifta sig á þessu ári.

Ricky Melnik, vara­for­seti og fram­kvæmda­stjóri Nitro Circus, sagði við ESPN um Archer: „Enginn hafði stærra hjarta eða meiri ákveðni en Jayo.“

„Við köll­uðum hann hinn ótrú­lega Hulk,“ hélt hann áfram. „Hann var óarga­dýr (e. beast) á hjól­inu og mildur risi þegar hann kom af því. Að horfa á hann fara í gegnum ferlið við að læra og lenda þre­falda snún­ingnum í keppni, var svo hvetj­andi. Hann vildi taka FMX á næsta stig og fara lengra en nokkur hafði náð áður.“

Pastrana, stofn­andi sam­tak­anna, sagði einnig við Nitro Circus eft­ir­far­andi: „Þetta sló mann alveg út af lag­inu. Jayo ólst upp á tímum þegar hasar­í­þróttir voru sem mestar og hann vildi alltaf gera stóru hlut­ina eins og tvö­fald­ann og þre­fald­ann [innsk. blm. snún­ing], jafn­vel þó að það væru ekki margir staðir til að sýna þessar stærri brellur. Hann var frá­bær mann­eskja fyrst, vinnu­samur í öðru lagi og algjört hörku­tól í þriðja lagi.“

Hér má sjá hið ótrú­lega stökk:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Daraxonrasib sýndi lofandi árangur hjá fólki með útbreitt briskrabbamein, en frekari rannsóknir þurfa að leiða í ljós hversu lengi áhrifin vara.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife