Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Hvernig smyrð þú ristabrauðið þitt? – Sálfræðingur rýnir í persónuleika „smyrjenda“

Maðurinn fékk borgað fyrir þetta.
Maðurinn fékk borgað fyrir þetta. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sál­fræð­ingur hefur nú upp­lýst dýpri mein­ingar á bak­við það hvernig fólk smyr rista­brauðið sitt.

Ekki er öll vit­leysan eins. Hegð­un­ar­fræð­ing­ur­inn Darren Stanton, frá Nott­ing­ham, hefur nú kynnt nið­ur­stöður rann­sóknar sem hann fékk senni­lega greitt fyrir að gera en hann rann­sak­aði mis­mun­andi aðferðir fólks við að smyrja rista­brauðið sitt. Út frá þeirri rann­sókn taldi hann sig geta lesið í per­sónu­leika hvers og eins „teg­undar“ smyrj­anda.

Til að mynda upp­lýsti hann að þau sem hann kallar upp á ensku Gliders og þýð­ist hálf klaufa­lega upp á hið ást­kæra ilhýra sem sviffl­ugur, eigi það til að vera rólegt í eðli sínu og auð­velt í sam­skiptum. En hvað eru Sviffl­ugur í þessu sam­hengi? Það eru þau sem svífa yfir rista­brauðið með smjör­hníf­inn og smyrja þvert yfir allt brauðið, en um 50 pró­sent af 2000 manna úrtaki sem svar­aði könnum um málið, sagð­ist smyrja þannig. Segir sér­fræð­ing­ur­inn að slíkir smyrj­arar svífi far­sæl­lega í gegnum lífið, án þess að láta stress og erf­ið­leika trufla sig.

Svifflugan

Þá sögð­ust 19 pró­sent fólks í þess­ari tíma­móta­rann­sókn, smyrja brauðið algjör­lega, án þess að sleppa bletti, svo­kall­aðir þekjarar, en það fólk segir Stanton vera mjög skipu­lagt. Nákvæmniseðli þeirra þýðir að þeir eru venju­lega þeir sem skipu­leggja allt í vin­áttu­hópnum sínum.

Þekj­ar­inn

En hvað má segja um rest­ina af teg­undum smyrj­ara? Hér fyrir neðan má sjá ljós­myndir og per­sónu­lýs­ingar sér­fræð­ings­ins af þeim teg­undum smyrj­ara sem til eru en athugið, nöfnin er mis­vel þýdd úr ensku, eins og gengur og ger­ist.

Klump­ur­inn

Klump­arnir, þau sem dreifa ekki smjör­inu jafn yfir brauðir og skilur jafn­vel eftir klumpa af smöri á sak­lausu brauð­inu, eru víst óút­reikn­an­leg í eðli sínu og hugsa út fyrir boxið.

Trippa-Siggan

Þau sem setja meira smjör en pláss er fyrir á brauð­inu, eða Trippa-Sigg­urnar, eru mjög opnir per­sónu­leikar og eru alltaf til í fjör.

Skorpu­forð­ar­inn

Fólk sem forð­ast að smyrja skorpuna er sagt vera mjög snyrti­legt.

Beggja­meg­in­s­myrj­ar­inn

Þau sem smyrja báðum megin eru þau sér­stök­ustu af öllum og þeim er sama þó þau skeri sig úr.

Rífa og dýfa

Þeir ein­stak­lingar sem vilja rífa brauðið niður og smyrja hvern bita eru að sögn sér­fræð­ings­ins, skemmti­leg og félags­lynd.

Krull­ar­inn

Þau sem nota sér­staka græju til að krulla upp smjörið, telja sig haf mikið götu­vit (e. Street-smart) og hafa til­hneig­ingu til að leita not­ast við öðru­vísi aðferðir til að leysa vanda­mál.

Varla þar

Þau sem varla setja nokk­urt smjör á rista­brauðið sitt eru að jafn­aði úti­vi­star­fólk. Þetta segir sér­fræð­ing­ur­inn og varla lýgur hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum