Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Spánn vinnur Eurovision ef marka má Google

|
|

Lönd eins og Ástralía, Spánn, Ítalía, Hvíta-Rússland, Ísrael, Frakk­land og Noregur gætu náð langt í Eurovision, ef marka má hve oft er leitað að fram­lögum þess­ara landa í leit­ar­vél Google.

Google safn­aði þessum leit­ar­gögnum einnig í fyrra og náði að sjá fyrir hvaða lönd skip­uðu sér í efstu sæti og hver bæri sigur úr býtum, en það var eins og margir vita Portú­gal­inn Salvador Sobral.

Nú er hægt að glugga í gögn Google fyrir Eurovision-keppn­ina í ár, sem fer fram í næstu viku. Samkvæmt þeirra gögnum er mest leitað að fram­lagi Spánar, en það eru þau Amaia og Alfred sem flytja lagið Tu canción fyrir landið sitt. Hinn hvít-rúss­neski Alekseev með lagið Forever er í öðru sæti og þriðja sætið vermir ítalska lagið Non mi avete fatto niente sem flutt er af Ermal Meta & Fabrizio Moro.

Á botn­inum á þessum lista er því miður að finna Ara okkar Ólafsson með lagið Our Choice, en einnig Rúmeníu, Georgíu og Svart­fjalla­land.

Sjá einnig: Það sem býr á bak við brosið.

Þess má geta að margir af þeim sem leita eru búsettir í löndum sem mega ekki einu sinni kjósa í Eurovision. Þannig eru margir í Papúa Nýju Gíneu og Vanuatu sem leita að hinni áströlsku Jessicu Mauboy og fjöld­inn allur af fólki í Suður-Ameríku sem leitar í gríð og erg að spænska fram­lag­inu.

Hin ísra­elska Netta Barzilai er talin sig­ur­strang­leg í veð­bönkum, og hefur verið lengi, en hún er í fjórða sæti á þessum lista frá Google. Annars sig­ur­strang­legur kepp­andi, Norð­mað­ur­inn Alex­ander Rybak, er í sjötta sæti, en Frakkar ná að troða sér á milli þess­ara tveggja flytj­enda.

Sjá einnig: Alex­ander Rybak heill­aði Eurovision-heim­inn á fyrstu æfingu.

En þetta eru ekki einu gögnin sem Google tekur saman. Leit­ar­vélin greinir einnig hvar mestur áhugi er fyrir Eurovision út um allan heim. Þar trónir Ísland á toppnum og er langt á undan þeirri þjóð sem skipar annað sætið, sem er Kýpur. Í þriðja er Eistland, því fjórða Malta og svo er það Grikk­land sem vermir fimmta sætið. Minnstur áhugi fyrir keppn­inni er í Brasilíu, Banda­ríkj­unum, Argent­ínu, Mexíkó og Kanada.

Í gögn­unum sést einnig að áhugi fyrir Eurovision stig­magn­ast í maí, en mestur áhugi á keppn­inni sam­kvæmt Google var í maí árið 2014 þegar dragdrottn­ingin Conchita Wurst færði Aust­ur­ríksi­mönnum sig­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé