Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Það sem býr á bak við brosið

Það sem býr á bak við brosið
||||||

„Ég er ekki hræddur. Ég er samt ekki óhræddur. Ég er mjög spenntur og með mik­inn fiðr­ing í mag­anum yfir þess­ari ferð. Þessi spennu­til­finn­ing er sam­bland af gleði og óvissu því þessi keppni er óút­reikn­an­leg. Það eina sem ég get gert er að gera mitt besta,“ segir söngv­ar­inn Ari Ólafsson.

Það ætti að vera flestum Íslend­ingum kunn­ugt að Ari er full­trúi Íslands í Eurovision-keppn­inni í ár. Ari kom, sá og sigr­aði með lag­inu Heim, sem síðar varð Our Choice á ensku, og flytur það á stóra svið­inu í Lissabon í Portúgal á fyrra und­an­úr­slita­kvöld­inu þann 8. maí næst­kom­andi. Ef allt gengur að óskum fær Ari að flytja það í annað sinn í úrslit­unum sem fara fram laug­ar­dags­kvöldið 12. maí.

Hrakfallabálkur sem barn

Ari er Reyk­vík­ingur í húð og hár, en ólst einnig að hluta til upp í Orlando á Flórída hjá afa sínum.

„Ég ólst í raun upp á þremur stöðum. Ég átti heima niðri í bæ, á Lauf­ás­veg­inum, þar til ég var sex ára. Ég eyddi líka mjög miklum tíma úti í Banda­ríkj­unum hjá afa mínum og síðan fluttum við fjöl­skyldan á Kvist­haga þegar ég byrj­aði í grunn­skóla svo ég gæti gengið í Mela­skóla. Og líka svo ég gæti gerst KR-ingur,“ segir Ari og hlær. „Pabbi minn er mik­ill KR-ingur og ég æfði fót­bolta frá sex ára aldri. Ætli ég verði ekki KR-ingur fram í rauðan dauð­ann. Ég kemst ekki upp með neitt annað,“ bætir hann við.

Ari á einn yngri bróður og býr með honum og for­eldrum sínum í grennd við JL-húsið í Reykja­vík. Hann segir það fljótt hafa komið í ljós að hann væri með ADHD þar sem hann var oft frekar utan við sig sem krakki.

Brosið hans Ara hefur heillað fólk út um alla Evrópu.

„Ég var mjög glaður krakki. Ég var alltaf hlæj­andi og bros­andi,“ segir Ari, en þetta skæra og ein­læga bros hans vann ekki aðeins hug og hjörtu Íslend­inga heldur hefur það vakið athygli út fyrir land­stein­ana í aðdrag­anda Eurovision. „Það var rosa­létt að vera með mig. Það var hægt að setja mig niður fyrir framan hvað sem er og ég bjó til eitt­hvað úr engu. En ég var alltaf að slasa mig. Ég er frekar óhepp­inn þegar kemur að meiðslum. Ég hef brotið hand­legg­inn á mér um það bil sex til sjö sinnum,“ segir Ari og byrjar að telja upp öll brotin, sem hafa verið allt frá knjúkum og upp að öxl. „Þetta er líka alltaf sama höndin. Alltaf vinstri,“ segir Ari og brosir. „Lík­leg­ast teng­ist þetta eitt­hvað því hvað ég var utan við mig sem barn. Ég var ekki alveg að fylgj­ast með umhverf­inu alltaf. Ég klifraði mikið og príl­aði og gerði ýmis­legt sem önnur börn myndu kannski ekki gera.“

Kallaður illum nöfnum í grunnskóla

Þótt Ari sé aðeins nítján ára gam­all hefur hann tals­verða reynslu af því að koma fram. Hann lék Oliver Twist í sam­nefndum söng­leik í Þjóð­leik­hús­inu þegar hann var ell­efu ára gam­all og tveimur árum síðar spreytti hann sig í verk­inu Galdra­karl­inum í Oz í Borg­ar­leik­hús­inu. Nokkru síðar söng hann með norsku stór­stjörn­unni Sissel Kyrkjebø á tón­leikum í Eldborg á 60 ára afmæl­is­tón­leikum söng­kenn­ar­ans síns, Bergþórs Páls­sonar. Ara seg­ist líða best á sviði, en hins vegar fékk hann að líða fyrir þessa vel­gengni í grunn­skóla.

„Ég var rosa­óör­uggur með mig þegar ég var yngri en það teng­ist því að ég lenti í ein­elti í skóla út af því að ég var í söng­leikjum. Ég veit ekki hvort fólk öfund­aði mig en það kall­aði mig illum nöfnum og ég skar mig alltaf úr,“ segir Ari. Hann segir það líka miður að skóla­kerfið hafi ekki verð­launað hann fyrir að standa sig vel í list­rænum greinum og telur að íslensk mennta­yf­ir­völd megi gera betur í þeim efnum.

Ari lenti í ein­elti í grunn­skóla.

„Ef krakkar hafa mark­mið sem þeir eru verð­laun­aðir fyrir að ná, hvort sem það er í bók­legum fögum, list­greinum eða íþróttum, þá munu þeir sjálf­krafa standa sig betur og blómstra í því sem þeir eru góðir.“

Eftir grunn­skóla lá leiðin í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð þar sem Ari fékk útrás fyrir sína list­rænu hæfi­leika.

„Ég fann mig rosa­lega mikið í tón­list­inni þá. Ég held að þessi sein­ustu ár hafi verið þau bestu fyrir mig. Ég hef alltaf haft sjálfs­traust en þegar ég hugsa til baka þá hefur ekki alltaf verið mikið inni­stæða fyrir þessu sjálfs­trausti. Nú, hins vegar, er ég far­inn að taka meira eftir því hvað ég er lán­samur og hepp­inn í líf­inu og ég tek engu sem sjálf­sögðum hlut. Ég vil vinna við tón­list og það að stíga upp á svið gerir mig ekki kvíð­inn heldur spenntan. Þetta er akkúrat það sem ég vil gera. Ég vil vera uppi á þessu sviði. Það er um að gera að nýta hverja ein­ustu sek­úndu því þetta er búið áður en maður veit af,“ segir Ari

Nauðsynlegt að sýna tilfinningar

Ara hefur verið spáð í alls konar sæti í Eurovision, allt frá því fyrsta niður í það neðsta. Þá tvístrað­ist þjóðin yfir fram­lag­inu þegar hann bar sigur úr býtum í Söngvakeppn­inni og hlaut lagið slæma dóma í sjón­varps­þætt­inum Alla leið á RÚV fyrir stuttu. Ari segir vissu­lega erfitt að finna fyrir mót­læti en hefur til­einkað sér að nýta jákvæðni sem vopn gegn nei­kvæðni.

„Ég held að það sé mest­allt mömmu og pabba að þakka. Mamma er sál­fræð­ingur og pabbi er giftur sál­fræð­ingi,“ segir Ari og hlær. „Ég fékk frekar flott upp­eldi en auð­vitað er alltaf erfitt að finna fyrir mót­læti. Í söng og leik­list er ég að tjá til­finn­ingar mínar. Ég er ber­skjald­aður. Ég er veikastur en einnig glað­astur og mitt besta sjálf þegar ég er uppi á svið­inu. Þegar fólk bregst illa við þá er það alltaf erfitt, en það er skemmti­legt að það jákvæða vegur alltaf meira en það nei­kvæða. Hins vegar virð­ist fólk alltaf ein­blína meira á það nei­kvæða, sem er algjör­lega ekki það sem maður á að pæla í,“ segir Ari og við rifjum upp þá umræðu sem skap­að­ist þegar Ari grét af gleði í beinni útsend­ingu vegna vel­gengni í Söngvakeppn­inni.

„Þá komu nei­kvæðar raddir upp á yfir­borðið en þær jákvæðu voru svo margar að þær þögg­uðu niður í leið­inda­skapnum. Það er það sem skiptir máli, að fólk standi saman og líti á það jákvæða. Ég er alltaf að átta mig meira og meira á því að það jákvæða í líf­inu skiptir meira máli en það nei­kvæða. En ég er ánægður með að þessi umræða spratt upp og ég vil tala um þetta. Fólk á ekki að vera hrætt við að sýna til­finn­ingar og vera það sjálft. Maður á að hlæja þegar mann langar til að hlæja og vera leiður þegar mann langar að vera leiður. Sumt fólk er svo hrætt við að vera leitt að það er alltaf glatt, en það er ekk­ert á bak við gleð­ina. Það er hollt að finna fyrir reiði, pirr­ingi og leiða en ekki leyfa þessum til­finn­ingum að stjórna sér. Maður þarf að finna fyrir þeim, átta sig á þeim og stjórna þeim. Þetta er það sem móðir mín hefur kennt mér allt mitt líf út af öllu sem ég hef gengið í gegnum. Maður getur nefni­lega ekki stjórnað öðru fólki, maður getur bara stjórnað sjálfum sér,“ segir Ari, en þessi nei­kvæðni um tárin sem láku niður kinnar hans virt­ist vera bein­tengd við gam­al­dags hug­myndir um karl­mennsku, úrelt gildi sem enn lifa góðu lífi.

„Fyrir mér er ekk­ert til sem heitir karl­mennska eða kven­mennska. Þetta eru bara ein­hver hug­tök, ein­hverjar rang­hug­myndir sem fólk er með. Snýst lífið ekki frekar um hvernig mann­eskjur við viljum vera? Viljum við vera umburð­ar­lynd, hjálpa öðrum og taka á móti líf­inu af jákvæðni, eða viljum við vera sjálfselsk og leið­in­leg? Á end­anum verður hver að velja fyrir sig og ég ætla að velja rétt.“

Spenntur að hitta Rybak

Síðan Ari fór með sigur af hólmi í Söngvakeppn­inni hefur hann haft í nægu að snú­ast. Þegar hann lítur til baka og rifjar upp augna­blikið þegar sig­ur­veg­ar­inn var til­kynntur kemur fal­legt blik í augu söngv­ar­ans.

Ari heill­aði þjóð­ina í Söngvakeppn­inni. Mynd / RÚV

„Það var ólýs­an­leg til­finn­ing sem skaust inn í hjartað mitt. Ég fékk svona sig­ur­til­finn­ingu, eins og ég hefði sigr­ast á heim­inum. Eins og ég hefði sigr­ast á sjálfum mér. Því mig lang­aði sjúk­lega mikið til að vinna og fara út með þennan boð­skap og þetta lag. Þegar ég fatt­aði að ég væri búinn að vinna þá gerði ég mér grein fyrir því hvað ég er lán­samur og hvað þetta yrði gaman. Ég gat ekki beðið eftir að byrja und­ir­bún­ing­inn þannig að við byrj­uðum strax dag­inn eftir. Ég er ekki búinn að fá einn frí­dag og ég nýt þess í botn. En vissu­lega kom sú hugsun yfir mig dag­inn eftir hve mikil ábyrgð hvílir á herðum mínum að vera full­trúi Íslands í þess­ari keppni en ég er bara svo glaður að þetta sé að ger­ast.“

Ari er næstyngstur í Eurovision í ár, en hin spænska Amaia Romero er nokkrum mán­uðum yngri en okkar maður. Hann segir ald­ur­inn bæði geta verið ógn­andi fyrir aðra en líka geta skapað efa í hans eigin brjósti.

„Ég held samt að það skipti minna máli en meira hvað ég er gam­all,“ segir Ari. Eins og áður segir er hann spenntur fyrir keppn­inni og til­bú­inn til að stíga á svið. Það er líka önnur ástæða fyrir því að Ari er fullur til­hlökk­unar. Það er nefni­lega út af því að eitt af átrún­að­ar­goð­unum hans úr Eurovision-keppn­inni, Norð­mað­ur­inn Alex­ander Rybak, er meðal kepp­anda í ár en hann sigr­aði eft­ir­minni­lega með lag­inu Fairytale í Moskvu árið 2009 þegar Jóhanna Guðrún vermdi annað sætið með Is it True?

„Ég er ofboðs­lega spenntur að hitta hann. Það er eig­in­lega skrýtið hvað ég er rosa­lega mik­ill aðdá­andi og ég trúi því ekki að ég fái að hitta hann og tjilla með honum,“ segir Ari sem er það spenntur að hann er búinn að ákveða hvað hann ætlar að segja við þetta fiðlu­spilandi sjarma­búnt. „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að koma orðum að þessu, en ég verð að segja honum að ég var ell­efu ára þegar ég sá hann keppa og vinna og síðan þá hefur hann verið átrún­að­ar­goðið mitt. Ég vil samt koma þessu frá mér án þess að honum líði eins og hann sé fjör­gam­all,“ segir Ari og hlær sínum smit­andi hlátri. Þá rifj­ast einmitt upp eitt hand­leggs­brotið sem gerð­ist akkúrat þegar Jóhanna Guðrún og Alex­ander Rybak keppt­ust um að kom­ast upp úr und­an­úr­slit­ar­iðl­inum í Rúss­landi um árið.

„Ég var í miðri stúd­ents­veislu hjá frænda mínum og við ákváðum nokkur að fara út að leika. Við vorum ofan á neti á marki sem slitn­aði og markið hrundi. Ég datt ofan á markið og frændi minn datt hinum megin við hönd­ina á mér. Það var járn­plata á milli og ég heyrði hand­legg­inn brotna. Þannig að ég missti af und­an­úr­slit­unum en ég horfði síðan á úrslitin í sum­ar­bú­stað í fatla.“

Bankar á dyr hjá Universal Studios

Ari er klass­ískt mennt­aður söngv­ari og fékk að vita það stuttu fyrir Söngvakeppn­ina að hann væri kom­inn inn í fimm ára söng­nám í hinum virta skóla The Royal Academy of Music í London. Hann flytur utan í haust, úr for­eldra­húsum og inn á leigu­mark­að­inn með tveimur æsku­vinum sínum. Saman skipa þeir hljóm­sveit og sér Ari dvöl­ina í London með róm­an­tískum blæ þar sem þeir vin­irnir ætla að ein­beita sér 150% að því að búa til tón­list.

„Við eigum fullt af lögum og erum með stúdíó hér heima sem við bjuggum til sjálfir en við höfum aldrei gefið neitt út. Það má segja að við spilum tón­list í ætt við Ed Sheeran og Coldplay, en við notum líka rödd­ina sem hljóð­færi og sumt sem við semjum er í anda Sigur Rósar. Ég held alla­vega að það séu fáir að flytja svip­aða tón­list og við. Við ætlum að búa saman þrír í London og það er eig­in­lega það sem ég hlakka mest til. Að sofa allir þrír saman í einu her­bergi og breyta rest­inni af íbúð­inni í stúdíó,“ segir Ari og bætir við að með þátt­töku hans í Eurovision hafi opn­ast ýmsar dyr fyrir tríóið.

„Ég er að skapa mjög góðan vett­vang fyrir okkur núna. Um dag­inn komst ég til dæmis í sam­band við yfir­mann hjá útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Uni­ver­sal Studios og var beð­inn um að senda efnið okkar á hann. Ef allt gengur að óskum þá gætum við hugs­an­lega kom­ist á samn­ing, þannig að það er aldrei að vita hvað kemur út úr því. Ég finn alla­vega að Eurovision opnar ýmsar dyr og þetta snýst um að grípa þau tæki­færi sem gef­ast.“

En er ekki litið niður á Eurovision í hinum klass­íska söng­heimi?

„Nei, alls ekki. Það gleym­ist oft að Eurovision snýst mikið um fal­legar og ein­lægar ball­öður, sem oft týn­ast í popp­inu því það er fyr­ir­ferð­ar­meira. En við sáum hvað gerð­ist í fyrra. Salvador Sobral steig á svið með afar fal­lega ball­öðu og náði að tengj­ast öllum heim­inum í gegnum tón­list­ina. Það er þessi teng­ing sem er svo fal­leg og hún skiptir ofboðs­lega miklu máli.“

Hér eru þau Ari og Þórunn í Eurovision-fyr­ir­par­tíi í Ísrael fyrir stuttu. Mynd / Stijn Smulders

Eurovision-gallinn á eftir að vekja athygli

Ari hefur ferð­ast um Evrópu síð­ustu daga, ásamt laga­höf­und­inum Þórunni Ernu Clausen, til að kynna sig og lagið áður en kemur að stóru stund­inni í Portúgal.

„Við Þórunn erum búin að fara um allt og skemmta í svoköll­uðum fyr­ir­par­tíum fyrir Eurovision. Ég var úti í tólf daga sam­fleytt, fór fyrst til London, síðan til Ísrael, svo til Portúgal að taka upp póst­kortið fyrir keppn­ina og end­aði í Amster­dam. Þá fór ég heim í tvo daga og hélt síðan út til Madríd. Ég er nýkom­inn heim og á morgun flýg ég til London að syngja á tón­leikum með finnsku Eurovision-stjörn­unni Söru Aalto,“ segir Ari, en þegar þetta við­tal er tekið er þriðju­dagur. Ari stoppar síðan örstutt á Íslandi þegar hann kemur heim frá London því á laug­ar­dag­inn flýgur hann rak­leiðis til Portúgal þar sem stífar æfingar hefj­ast.

„Auðvitað er ég þreyttur en þetta er góð þreyta. Ég er sáttur yfir því að hafa svona mikið að gera þannig að þetta er mjög þægi­leg þreyta. Það er mjög mik­il­vægt að fara í þessi partí því þegar ég svo kem út til Lissabon þá vita margir blaða­menn hver ég er, sem og hörð­ustu aðdá­endur keppn­innar. Þetta skiptir máli upp á það að gera að fólk skrifi um mig og ég kom­ist í við­töl,“ segir Ari.

Ari nýtur hverrar mín­útu í Eurovision-ævin­týr­inu.

En hverju megum við búast við af atriði Ara úti í Portúgal?

„Atriðið verður ekki alveg eins og það hefur verið, við erum búin að gera nokkrar breyt­ingar. En ég get sagt að ég verð mjög vel klæddur. Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga á rauða dregl­inum,“ segir Ari sposkur á svip­inn. „Við skulum segja að klæðn­aður minn verði í anda íslensku þjóð­ar­innar og ég held að hann eigi eftir að vekja mikla athygli.“

Hugsar um ástvini á sviðinu

Óska­barnið okkar stígur annað á svið í fyrri und­an­úr­slit­unum þann 8. maí og er það mál Eurovision-spek­inga að rið­ill­inn okkar sé ansi stremb­inn, svo­kall­aður dauðarið­ill.

„Já, við erum í dauð­asta dauð­ar­iðli sem hefur sést í Eurovision. Allir blogg­arar eru með því­líkt skiptar skoð­anir um hvernig þessi rið­ill eigi eftir að fara og margir eru á því að lögin sem endi í tíu efstu sæt­unum í aðal­keppn­inni séu í þessum riðli. Ég veit ekk­ert hvernig þetta mun fara, bara engan veg­inn,“ segir Ari, sem stefnir að sjálf­sögðu að sigri.

Sjá einnig: Þetta eru lögin sem Ari keppir við í Lissabon

„Mark­miðið er að vinna. Það hefur alltaf verið mark­miðið. Hins vegar er aðal­mark­miðið að ná til fólks­ins með lag­inu og að fólkið heima í sófa finni fyrir teng­ingu við lagið. Ef ég næ bara til einnar mann­eskju þá hef ég staðið mig vel,“ segir Ari. Það örlar ekki á efa í huga söngv­ar­ans þar sem hann trúir á lagið Our Choice alla leið.

„Ég tengi svo mikið við þetta lag og það getur átt við svo margt. Það getur átt við að við séum ekki að tjá til­finn­ingar okkar og að við séum ekki að leyfa fólki að vera eins og það er. Það teng­ist femín­isma, ofbeldi, ein­elti og öllu sem við getum bætt í heim­inum. Þetta snýst um þetta val að vera partur af lausn­inni en ekki vanda­mál­inu. Við vitum aldrei hvað næsta mann­eskja er búin að ganga í gegnum og það er mik­il­vægt að búa til traust, gagn­kvæma virð­ingu og jákvæðni á milli okkar,“ segir Ari. Hann getur að sjálf­sögðu ekki tekið allan heim­inn með sér upp á svið þannig að mér leikur for­vitni á að vita um hvað hann hugsi þegar hann flytji lagið.

„Ég hugsa um fólkið sem mér þykir vænt um. Ég hugsa um mínar ákvarð­anir í líf­inu. Sumar hafa ekki verið réttar en sumar hafa verið góðar. Ég hugsa líka um mann­eskj­una sem ég er að reyna að sann­færa. Ég er að reyna að fá hana til að ganga áfram og inn í ljósið en ekki bæl­ast inni í svart­nætt­inu. Þessi eina mann­eskja táknar auð­vitað allt sam­fé­lagið.“

Heldur einkalífinu fyrir sig

Talið berst að ást­vinum Ara en hann er mjög náinn fjöl­skyldu sinni og hefur átt sömu tvo bestu vin­ina síðan í fyrsta bekk. Hann seg­ist umkringdur góðu fólki og eins og staðan er núna eru sautján fjöl­skyldu­með­limir og vinir á leið­inni til Portúgal með Ara og sá hópur gæti stækkað á næstu dögum.

„Ég og bróðir minn og for­eldrar erum mjög náin og við náum að halda góðum tengslum við aðra í fjöl­skyld­unni. Það er mjög mik­il­vægt. Þau koma með mér út en einnig kærasta mín og fleiri fjöl­skyldu­með­limir. Svo koma Bergþór og Albert líka með út, það er ekk­ert annað í boði,“ segir Ari og vísar í Bergþór Pálsson, söng­kenn­ara sinn, og Albert Eiríks­son, eig­in­mann hans. „Bergþór og Albert eru eins og hin hjónin sem eiga mig. Það er ros­anæs.“

Ég staldra við og spyr Ara um kærust­una, en söngv­ar­inn hefur lítið tjáð sig um sitt einka­líf í fjöl­miðlum.

„Við erum búin að vera saman í rúm­lega ár og það er bara æðis­legt. Ég tala ekki mikið um það í við­tölum því fólk þarf ekk­ert að vita um mitt einka­líf. Við viljum bara halda því fyrir okkur.“
Ari lætur ekki mót­lætið buga sig.

Gefst aldrei upp

Stuttu eftir að Ari snýr aftur heim frá Portúgal kemur að öðrum stórum áfanga í lífi hans. Hann verður nefni­lega tví­tugur þann 21. maí næst­kom­andi.

„Þá verður partí. Ég ætla að halda tví­tugs­af­mælið mitt uppi í bústað með vel völdu fólki og bara hafa gaman,“ segir Ari. Á slíkum tíma­mótum grípur fólk oft sú löngun að líta yfir far­inn veg og Ari er þar engin und­an­tekn­ing.

„Það sem stendur upp úr og það sem ég er stolt­astur af er að hafa tek­ist á við til­finn­ingar mínar og leyft mér að þora að fara í þetta ævin­týri. Ég er ánægð­astur með að hafa verið jákvæður og leyft mér að stefna hátt og að vera nógu dug­legur til að ná mínum mark­miðum. Það er ekki til í mér að gef­ast upp. Þó að mót­lætið sé mikið gefst ég aldrei upp.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina