Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Eva birtir staðreyndir HSS-málsins: „Lögreglan er búin að senda málið til ákærusviðs“

Eva Hauksdóttir lögmaður.
Eva Hauks­dóttir lög­maður.

Eva Hauks­dóttir birtir stað­reyndir um mál Skúla Tómasar Gunnlaugs­sonar læknis, í ljósi færslu hans á Facebook þar sem hann segist hafður fyrir rangri sök.

Sjá einnig: Sonur meints fórnar­lambs Skúla læknis svarar: „Ég varð vitni af því þegar móðir mín var aflífuð“

Lögfræðingurinn Eva Hauks­dóttir er dóttir Dönu Jóhanns­dóttur sem er eitt sex meintra fórnar­lamba Skúla T. Gunnlaugs­sonar, þáverandi yfir­læknis HSS. Dana var lögð inn í hvíldar­innlögn í lok árs 2019 inn á HSS en Skúli setti hana í lífsloka­meðferð, þrátt fyrir að ekkert lífs­hættulegt hrjáði hana. Hún lést 11. vikum eftir að hún var lögð inn en var þá með þvagfæra­sýkingu og legusár inn að beini en hvorugt var almennilega meðhöndlað á spítalanum.

Sagði Skúli, sem nú starfar á Lands­spítalanum, í færslu sem birtist á Facebook í gær, að hann væri hafður fyrir rangri sök og að sérfræðingar hefðu komist að þeirri niður­stöðu að sjúklingarnir sex hefðu allir látist af „náttúru­legum orsökum“. Færsla Skúla fékk tölu­verðan stuðning á Facebook frá fólki úr ýmsum áttum og ýmsum stéttum. Þar má meðal annars nefna Pál Matthíasson geðlækni og fyrrum forstjóra Land­spítalans en hann var við stjórn þar á árunum 2013 til 2021.

Eva Hauks­dóttir sá sig knúna til að birta „sann­leikann í HSS málinu“ í færslu á Facebook í dag. Fer hún yfir stað­reyndir málsins en færsluna má lesa hér:

„Aðeins varðandi sann­leikann í HSS málinu:

1) Niður­staða óháðs sérfræðings sem vann álitsgerð fyrir embætti land­læknis (EL) var sú að ekki hefði verið forsenda fyrir lífsloka­meðferð2) Niður­staða sérfræðinga EL var sú að ekki hefði verið forsenda fyrir lífsloka­meðferð3) Niður­staða matsmanna er sú að ekki hafi verið forsenda fyrir lífsloka­meðferð.4) Læknarnir voru ósáttir við þá niður­stöðu og fóru fram á endur­upptöku mats­gerðar í ljósi nýrra gagna.5) Nýju gögnin voru fyrst og fremst framburðar­skýrslur vitna sem sögðu að móðir mín hefði verið erfið og leiðinleg. Það eru engar fréttir fyrir mig, ég þekki engan sem fannst hún ekki erfið.6) Það að sjúklingur sé erfiður og leiðinlegur réttlætir ekki ótímabæra lífsloka­meðferð.7) Í seinni umferð er niður­staða matsmanna sú að ekki hafi verið forsendur fyrir lífsloka­meðferð.8 ) Lögreglan er búin að senda málið til ákæru­sviðs. Hvernig í ósköpunum lækna­mafíunni tekst að túlka það sem merki um að sakborningar hafi verið hvít­þvegnir er mér hulin ráðgáta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi