Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

98 prósent nemenda á móti sameiningu: „Fólk í valdastöðu fer með framtíð okkar eins og þeim sýnist“

Menntaskólinn á Akureyri –
Mennta­skól­inn á Akureyri – Mynd: Wikipedia

Í gær var greint frá því að til stæði að sameina MA og VMA í einn skóla en nemenda­félag MA er gríðar­lega á móti slíkum áætlunum.

Eins og Mannlíf greindi frá í gær tilkynnti Ásmundur Einar Daðason, barna- og menntamála­ráðherra, frá áætlun þess að til stæði að sameina Mennta­skólann á Akureyri og Verk­mennta­skólann á Akureyri í einn skóla. Skóla­stjórar MA og VMA segja vera jákvæðir fyrir þessari sameiningu. Skóla­félagið Huginn í MA sendi frá sér yfir­lýsingu í fram­haldinu og segir þar að loforð hafa verið brotin og mikill meirihluti nemenda sé á móti sameiningu. Hægt er að lesa yfir­lýsinguna hér fyrir neðan.

„Stjórn Skóla­félags Hugins í Mennta­skólanum á Akureyri er með öllu mótfallin sameiningu MA og VMA. Í skóla­kerfi af þessari stærðar­gráðu munu nemendur aldrei upplifa sömu nánd við kennara, stjórn­endur, stoðteymi eða samnemendur. Nemendur eiga ekki skilið að vera lítill hlekkur í risa­stórri hagræðingar­keðju ríkis­stjórnar. Mennta­skólinn á Akureyri er eitt virtasta mennta­setur á landinu og hefur lengi vel verið þekktur sem skóli hefðanna. Með sameiningu af þessum toga er vegið að öllum okkar hefðum. Nemendur sækja í MA fyrir einstakt félagslíf. Skólinn stendur fyrir óteljandi viðburðum sem fylgja MA-ingum út lífið, þar má nefna árshátíðina, menningar­ferðina, júbilantahátíðina og margt fleira. Það er því deginum ljósara að með sameiningu myndu þessar hefðir eiga undir högg að sækja. Því spyrjum við mennta- og barnamála­ráðuneytið hvernig þau geta með hreinni samvisku fleygt út um gluggann öllu því sem gerir skólann okkar einstakan? Er hagræðing í mennta­kerfinu meira virði í augum ráðuneytisins en menning og saga skóla um allt land? Gefið var út í dag á vef stjórnar­ráðsins að ákvörðun liggi fyrir um sameiningu skólanna tveggja og nú fari ferli af stað með nemendur til hliðsjónar. Í vor þegar fréttir bárust um fyrir­hugaða sameiningu var nemendum lofað, að áður en ákvörðun yrði tekin fengju nemendur að koma sínu á framfæri. Aðgerðir dagsins í dag eru þvert á þau loforð sem mennta- og barnamála­ráðuneytið gaf út. Eftir að hafa lagt könnun fyrir nemendur í Mennta­skólanum á Akureyri eru 98% þeirra mótfallin sameiningunni. Við munum ekki standa aðgerðar­laus hjá á meðan að fólk í valda­stöðu fer með framtíð okkar eins og þeim sýnist.

Við erum framtíðin og við segjum nei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp