Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

MA og VMA verði sameinaðir: „Þá aukum við hagkvæmni“

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra

Mennta­skólinn á Akureyri og Verk­mennta­skólinn á Akureyri munu sameinast ef allt gengur eftir.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamála­ráðherra, tilkynnti á fundi í Hofi í dag að stæði til að sameina MA og VMA og eru skóla­meistarar skólanna jákvæðir fyrir þessari sameiningu. Þó að málið sé ekki frágengið þá eru þetta meðmæli stýrihóps sem var skipaður í apríl.

„Niður­staða stýri­hópsins er að með sameiningu þessara framhalds­skóla verði til mun öflugri stofnun til að mæta þeim áskorunum sem skóla­samfélagið stendur frammi fyrir á komandi árum og vinna að þeim markmiðum sem sett hafa verið fram í mennta­stefnu. Hafa þarf í huga að tillagan snýr að því að sameina ólíka skóla með ólíka menningu og því skiptir máli að starfs­fólk skólanna skoði nánar hvernig gera megi það svo vel fari,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamála­ráðherra á fundinum.

„MA og VMA hafa lengi verið merkis­berar metnaðar­fulls skóla­starfs hvor á sinn hátt. Áherslur og náms­framboð hafa verið í takt við samfélagið á hverjum tíma og skóla­starfið skipt máli í uppbyggingu þess samfélags sem við búum í. Skólarnir eru stórir og eftir­sóttir vinnu­staðir þar sem áhersla hefur verið á fagmennsku kennara og velferð nemenda í síbreytilegum heimi. Við sameiningu skólanna verður til öflugt skóla­samfélag þar sem fjöl­breytt náms­framboð mun veita fjöl­breyttum nemenda­hópi tækifæri til menntunar. Hlutverk okkar er að byggja upp ungt fólk, undirbúa þau sem best undir frekara nám og til ákveðinna starfa en ekki síður til að lifa og starfa í lýðræðis­þjóðfélagi,“ sagði Sigríður Huld Jóns­dóttir, skóla­meistari Verk­mennta­skólans á Akureyri, um málið.

„Með sameiningu þá aukum við hagkvæmni í skipulagi námsins og skólanna sem gerir okkur kleift að auka gæði og framboð bæði bók- og starfs­náms. Allt rímar þetta vel við mennta­stefnu stjórn­valda þar sem lögð er áhersla á að veita fram­úrskarandi menntun í umhverfi þar sem öll geta lært og öll skipta máli. Auk þess hefur það verið sérstakt forgangs­atriði hjá ríkis­stjórninni að efla iðn- og starfsnám sem ég tel að hinn sameinaði skóli muni geta gert með sóma,“ hélt Ásmundur áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim