Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Thelma ítrekar ásakanir um kynferðsiofbeldi: „Var að spyrja hvort ég væri með kynsjúkdóma“

„Við erum oft ósjálfrátt búin að mynda okkur skoðun á þjóð­þekktum einstaklingum, þegar það koma upp mál líkt og kynferðis­brotamál þá er oft erfitt fyrir fólk að kyngja því að það hafi átt sér stað,“ segir Thelma Dögg Guðmundsen, áhrifa­valdur og förðunar­fræðingur í samtali við Mannlíf á síðasta ári.

Thelma sakar þjóð­þekktan íþrótta­fréttamann um nauðgun og yfirmann vefmiðils um kynferðislegt áreiti á vinnustað. Thelma birti þá frásögnina á Instagram-síðu sinni og sagði þar frá kynferðis­ofbeldi sem hún hefur orðið fyrir, en þar segir hún um tvö atvik vera að ræða. Báðir gerendur eru lands­fólki vel kunnugt að sögn Thelmu en hún nafn­greinir hvorugan.

Í viðtali við Mannlíf í maí á síðasta ári segir Thelma að ástæða þess sé til að fólk geti lesið á milli línanna í þeim málum. Þá fullyrðir hún að báðir einstaklingar hafi reynst
stikkfrí og samþykktir innan þjóð­félagsins. „Þessu viðhorfi þurfum við að breyta því það er engin viss uppskrift hvernig ofbeldis­maður er,“ segir hún. „Við erum aldrei búin með umræður um kynferðis­brot og það er aldrei of oft rætt þá hluti.“

Thelma Dögg tjáði sig að nýju varðandi sama mál í nýjasta hlaðvarps­þætti Eddu Falak.

Thelma greinir frá því að árið 2014 hafi hún verið að starfa hjá vefmiðli þegar maður sem hafi verið eigandi miðilsins hafi orðið ágengur í samskiptum við hana og meðal annars hótað henni að hann gæti gert út um feril hennar í fjöl­miðlum ef hún yrði ekki að óskum hans.

„Þegar ég byrjaði þarna þá er staðan þannig að hann segir mér bara einfald­lega að ég sé ótrúlega heppin að vera í þessari stöðu. Því þá var ég ekki búin með vissa menntum sem hentaði þannig að hann væri að gefa mér rosalega mikinn séns og hann væri að passa líka upp á mig. Hann væri að sjá til þess að ég væri þarna áfram,“ segir Thelma.

„Ég þurfi að fara í aðgerð einhvern tímann og hann var þá að spyrja hvort ég væri með kynsjúkdóma og hvað þetta væri og af hverju ég væri að fara í aðgerð,“ segir Thelma. En henni hafi þótt þetta óviðeigandi.

Þyrfti að sofa hjá honum til að halda vinnunni

Síðan hafi verið matarboð fyrir vinnu­staðinn. Þar hafi maðurinn gengið fram af henni og samstarfs­konu.

„Eftir að hann er búinn að telja mér trú um það að ég þyrfti að sofa hjá honum til að halda vinnunni minni þá hélt hann bara áfram og hótaði því að ég þyrfti að sofa hjá honum ef ég vildi einhvern tímann vinna aftur hjá fjölmiðli – ef ég vildi vinna í sjónvarpi- og hann myndi sjá til þess að það yrði ekkert úr mér ef ég myndi ekki verða að hans óskum.“

Þessar samræður hafi átt sér stað yfir um 45 mínútna tímabil, en maðurinn hafi króað hana af og hún átt erfitt með að koma sér undan.

„En þarna var ég einhvern veginn að reyna að koma upp orði og hann bað mig að hætta bara þessu kjaftæði og taka prikið úr rass­gatinu á mér og allskonar bara áfram­haldandi. Bara ótrúlega óviðeigandi og niður­brjótandi og bara kynferðisleg áreitni sem átti sér stað þarna.“

Ekki á Tinder því hann hefði ekki undan

Hún hafi tekið orð hans nokkuð trúanleg þar sem maðurinn á þessum tíma virtist mjög vel tengdur. Var bæði eigandi af vefmiðli og með sjónvarps­þátt.

„Hann var með þátt á Stöð 2 á þessum tíma, og hann var búinn að svona ýja að því að ég mætti nú fara að komast þar inn og það væri gaman ef ég myndi ná að vera þar, þetta var svona pólitískur þáttur. Þannig í rauninni var hann þarna að hræða mig algjör­lega frá a–ö.”

Maðurinn hafi einnig sagt við hana að hann væri valda­mikill, sérstak­lega að hann hafði völd yfir konum og gæti fengið hvaða konu sem hann vildi.

„Og að hann þyrfti ekki að vera á Tinder eða einhverju appi því hann myndi ekki hafa undan og þyrfti að fá einhvern til að sjá um það fyrir sig.“

Þetta er gæinn sem borgar launin okkar

Samkvæmt frétt DV strauk hann á henni lærið og þá reyndi hún að komast frá honum. Á sama tíma hafi hann líka áreitt samstarfs­konu hennar og farið með hendina undir pilsið hjá henni og sagt álíka hluti og hann hafði sagt við Thelmu.

„Ég fer þarna inn á bað og hún með mér. Og við bara báðar í mjög miklu sjokki og erum að pæla hvað við ættum eiginlega að gera – þetta er gæinn sem borgar launin okkar og ræður því hvort við höldum okkar starfi eða ekki sko.“

Thelma hafi líka upplifað að aðrir í matar­boðinu sem gætu talist vitni væru meðvirkir með manninum þar sem þau áttu einnig störf sín og afkomu undir honum komið.

Daginn eftir hafi Thelma haft samband við samstarfs­konu sína varðandi næstu skref. Þó að sú hafi rætt það í matar­boðinu að þær ættu að fara með málið lengra, hafði hún þarna skipt um skoðun því hún vildi ekki missa vinnuna. Thelma segist alveg skilja það, en sjálf ákvað hún að segja starfi sínu lausu og var þá í erfiðri stöðu þar sem hún var verktaki og átti engan rétt á greiðslu í uppsagnar­frest.

Átti engar minningar frá matarboðinu sökum áfengisóminnis

Fyrst hafði hún þó leitað til síns næsta yfirmanns en komst þá að því að umræddur maður hafi tilkynnt þeim að hann ætti engar minningar frá matar­boðinu sökum áfengis­óminnis. Telur Thelma það ólíklegt þar sem maðurinn hringdi ítrekað í hana áður en hann ræddi við yfirmann hennar.

Eins hafi hún leitað til Blaðamanna­félagsins en félagið hafi ekki brugðist við.

Maðurinn hafi svo sent Thelmu skilaboð, sem má sjá hér að neðan, þar sem hann sagði hana ekkert eiga upp á sig að klaga.

Thelma segir að umræddur maður hafi svarað fyrir málið í kjölfarið og beðist afsökunar, þegar hún opnaði sig um málið fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu