Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Reyndi að kæfa hana með dýnum, lagði hönd yfir munn hennar, barði og hótaði að drepa hana

Héraðs­dómur Vestur­lands staðfesti mánaðar­langt nálgunnar­bann karlmanns, fyrir gróft ofbeldi

Dómur hefur verið kveðinn upp
Dómur hefur verið kveð­inn upp Lands­réttur stað­festi ákvörðun lög­regl­unnar Mynd: Shutterstock

Karlmaður sem grunaður er um ítrekað heimilis­ofbeldi gagnvart sambýlis­konu sinni hefur verið vísað af heimili þeirra og sætt nálgunar­banni í kjölfar alvarlegra ásakana og myndefnis sem sýnir ofbeldið. Vísir sagði frá málinu.

Fram kemur í úrskurði Héraðs­dóms Vestur­lands, sem Lands­réttur hefur staðfest, að þau hafi kynnst í apríl 2025 og flutt fljótlega inn saman. Konan segir að ofbeldi og hótanir mannsins hafi hafist skömmu síðar.

Hún tilkynnti málið til lögreglu um miðjan nóvember og lýsti m.a. árás í júlí eða ágúst þar sem hún varð fyrir endur­teknum hnefa­höggum og fékk glóðurauga og aðra áverka. Í kjölfarið flutti hún tíma­bundið til fyrr­verandi kærasta.

Kvöldið sem hún fór til lögreglu hafði maðurinn, að hennar sögn, meðal annars kastað hlutum, hótað henni, gripið hana og meinað henni að kalla á aðstoð. Hann á einnig að hafa reynt að kveikja í klósett­pappír og hótað að brenna íbúðina, auk þess sem hann tók upp hníf og beindi honum að henni. Hún flúði í kjölfarið af heimilinu. Nágranni staðfesti að hann hefði heyrt læti og að hann kallaði hana „tussu“ en varð ekki vitni að ofbeldi.

Síðar í nóvember kallaði konan aftur á aðstoð lögreglu eftir að maðurinn á að hafa reynt að kæfa hana með dýnum, lagt hönd yfir munn hennar, barið hana og hótað að drepa hana. Þá fundu lögreglu­menn upptökur úr öryggis­myndavél við heimili hennar. Á þeim sést maðurinn koma að konunni, hrinda henni harkalega í gólfið, halda fyrir andlit hennar og draga hana eftir gangstéttinni. Einnig sést hann lyfta henni upp með báðum höndum um hálsinn áður en hann ýtir henni inn í íbúðina.

Maðurinn hefur neitað sök í skýrslu­tökum.

Lögreglu­stjórinn á Vestur­landi úrskurðaði hann í brott­vísun af heimilinu í allt að fjórar vikur og lagði á nálgunar­bann sem bannar honum að nálgast eða hafa samband við konuna. Héraðs­dómur og síðar Lands­réttur staðfestu ákvörðunina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim