Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigga Dögg: „Ungt fólk í dag er með meiri kvíða fyrir því að sofa hjá en eldri kynslóðir“

Sigríður Dögg Arnar­dóttir, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, er í helgar­viðtali Mannlífs. Hún hefur verið í þunga­miðjunni á heitri og oft óvæginni samfélags­umræðu undan­farið. Sú umræða fór af stað eftir að Sigga Dögg hafði sótt námskeið um fyrirbæri sem kallast „breath play“ og deilt upplýsingum af námskeiðinu sem henni þótti bæði áhuga­verðar og mikil­vægar, á Instagram-síðu sinni. Hún sagði unglinga oft spyrja um kyrkingar í kynfræðslu; eitt af fjölmörgum atriðum sem spurt er um á námskeiðum hennar og hún stígur inn í með krökkunum á grund­velli samþykkis og fræðslu.

Það fárviðri sem fór í hönd í kjölfar þessa náði ákveðnum hápunkti í Kastljós­þætti þar sem Sigga Dögg mætti Hönnu Björgu Vilhjálm­sóttur, sem sakaði hana um að kenna börnum kyrkingar og normalísera ofbeldis­hegðun.

Kýlin eru bara sprengd

Hvað finnst Siggu Dögg um það að umræðan virðist alltaf springa svona í loft upp? Að það verði gjarnan til þessar fylkingar og pólarísering?

„Ég held að þetta sé bara fasinn sem við erum í sem samfélag, út af metoo og öllu þessu. Kýlin eru þarna og þau eru bara sprengd. Þannig fjar­lægjum við bólur. Þetta hlýtur að vera okkar lærdóms­fasi núna; að til að taka á stóru málunum, eða litlu öngum stóru málanna, þá þurfum við svolítið að fara og springa vel og duglega, leyfa öllu að flæða út og sjá svo hver staðan sé.

Ég var einu sinni með innvortis blæðingu og læknirinn sagði þetta: „Við vitum ekkert hvað við erum að díla við, fyrr en við förum inn í þig. Þá kemur margt í ljós.“

Þetta er pínu það. Við erum í svo miklu uppgjöri og þetta er alltaf þannig að unga og eldri kynslóðin tekst á. Ég er mjög tæp á að teljast sem unga kynslóðin. Ég er að verða fertug sko, ég er eitís-krakki. Það er alveg svona stretching it að hafa mig sem ungu kynslóðina, því ég myndi segja að það væru krakkar sem eru núna í háskólanum. Það er í rauninni unga kynslóðin, sem er þessi millenials og er meðvituð um jörðina. Ég ólst ekkert upp við neitt rosalega umhverfis­meðvitund.

Ef við horfum á kynslóðina fyrir ofan mig, þá er það kynslóð sem elst upp við ákveðna velmegun. Hún elst upp við kaupmátt, að fara til útlanda. Kannski svona fyrsta kynslóðin sem er ekki amma og afi sem passa, heldur amma og afi sem djamma og eru í golfi. Það er allt í einu þannig að sextíu er nýja fimmtíu. Það er svo margt breytt á einni kynslóð. Þannig að eins og ég upplifi það, þá er kynslóð foreldra minna mjög ólík kynslóð foreldra sinna og svo finn ég að mín kynslóð og hvernig við til dæmis erum í uppeldi, er allt öðruvísi en kynslóðin fyrir ofan mig að miklu leyti, sem ól upp mína kynslóð. Þannig að þetta eru rosa átök á mjög skömmum tíma; í hugmynda­fræði, þanka­gangi og nálgun. Alveg eins og mín kynslóð pirrar sig á tvítugum krökkum: „Guð, þau eru svo mikil snjókorn“ og „þau eru svo kvíðin þessi elsku blóm.“ Maður heyrir þetta – það eru alltaf kynslóða­átök. Það hefur alltaf verið og mun alltaf verða. Það kemur mér ekki á óvart að það birtist líka hér. Eðlilega birtist það hér.

„Þau eru meira á brems­unni en fyrri kyn­slóðir“

Það er til tölfræði um það að mín kynslóð og kannski fólk sem er fimm, sex árum eldri en ég, er með frekar háan meðal­fjölda bólfélaga. Svo var aldur við fyrstu samfarir skoðaður.

Þegar þetta var síðan skoðað aftur hafði aldur við fyrstu samfarir farið upp á við. Þannig að unglingar í dag eru eldri þegar þau stunda fyrst samfarir en þau voru fyrir 20 til 30 árum síðan. Það er bara þróunin í vestrænum heimi; aldur við fyrstu samfarir fer upp á við, sem er bara jákvætt.

Þegar ég er að kenna, eins og uppi í HR, eða í framhalds­skólum, þá finnur maður að það er allt önnur stemning í tengslum við kynlíf. Mér finnst eins og fólk sem vinnur ekki við þetta tali um að unga kynslóðin sé svo klámvædd, sé bara í einhverju eins og kyrkingum og bara sofandi hjá úti um allt. Þegar raunin er sú, og við höfum bandaríska og evrópska tölfræði um það, að ungt fólk í dag á færri bólfélaga heldur en eldri kynslóðin, er með meiri kvíða fyrir því að sofa hjá og stundar minna kynlíf en eldri kynslóðir, meðal annars út af ótta við ofbeldi. Ótta við það að verða fyrir ofbeldi. Þetta er svolítið áhugavert. Við ætlum þeim að vera svo klámvædd og sjúk en þau eru meira á bremsunni en fyrri kynslóðir.“

Helgar­viðtalið við Siggu Dögg má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim