Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Tinnu Alavis og Sólrúnu Diego bannað að birta duldar auglýsingar

Mynd / Unsplash
Mynd / Unsplash

Neytenda­stofu barst nýverið ábendingar um duldar auglýsingar tveggja áhrifa­valda á Instagram. Áhrifavaldarnir sem um ræðir eru Sólrún Diego og Tinna Alavis.

Í ábendingum til Neytenda­stofu var bent á að bæði Sólrún og Tinna höfðu fjallað um ýmsar vörur og þjónustu fyrir­tækja án þess að það kæmi fram að um auglýsingu var að ræða. Í tilfelli Sólrúnar var sérstak­lega vísað til umfjöllunar hennar um verslunina Air í Kringlunni. Í tilfelli Tinnu var bent á umfjöllun hennar um vörur og þjónustu verslunarinnar Sætar syndir.

Þegar Neytenda­stofa krafði Sólrúnu og Tinnu um upplýsingar um hvort endur­gjald hefði komið fyrir umfjöllunina kom í ljós að áhrifavaldarnir höfðu þegið vörur að gjöf frá fyrir­tækjunum sem telst vera endur­gjald.

Neytenda­stofa taldi að um markaðs­setningu væri að ræða og að ekki hefði komið fram með nægilega skýrum hætti að umfjöllunin hefði verið auglýsing eða að hún væri gerð í viðskipta­legum tilgangi. Þetta kemur fram í grein Neytenda­stofu um málið.

Stofnunin bannaði því áhrifa­völdunum að nota duldar auglýsingar á samfélags­miðlum.

Hvítt letur á hvítum bakgrunni

Í ákvörun Neytenda­stofu kemur fram að Sólrún merkti umfjöllun sína með myllu­merkinu #samstarf en merkingin þótti of lítil. „Benti stofnunin á að umræddar færslur hafi ekki verið merktar sem auglýsingar eða með öðrum skýrum hætti greint frá því að þær hafi verið gerðar í viðskipta­legum tilgangi, að því undan­skildu að finna mátti örsmáa merkingu neðst í hægra horni myndarinnar, #samstarf, í hvítu letri á hvítum grunni,“ segir meðal annars í ákvörðuninni sem má lesa í heild sinni hérna.

„Með vísan til 2. mgr. 21. gr. b. laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskipta­háttum og
markaðs­setningu, er Sólrúnu Lilju Diego Elmars­dóttur bannað að birta auglýsingar
með framan­greindum hætti. Verði ekki farið að banninu má búast við að tekin verði
ákvörðun um sekt á grund­velli IX. kafla laga nr. 57/2005, um eftirlit með
viðskipta­háttum og markaðs­setningu,“ segir í ákvörðunar­orðum Neytendasotfu.

Merkti ekki færslurnar

Í umfjöllun um mál Tinnu segir að umfjöllun hennar hafi ekki verið merkt. „Umræddar færslur hafi ekki verið merktar sem auglýsingar eða með öðrum hætti greint frá því að þær hafi verið gerðar í viðskipta­legum tilgangi,“ segir meðal annars um mál Tinnu. Ákvörðunarorð Neytenda­stofu má lesa í heild sinni hérna. 

Hér má svo lesa leið­beiningar Neytenda­stofu um auðþekkjanlegar auglýsingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim