Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Hermaður kveikti í sér fyrir framan sendiráð Ísraels: „Verð ekki lengur samsekur í þjóðarmorði“

Hermaður í flug­her Banda­ríkj­anna kveikti í sér fyrir framan ísra­elska sendi­ráðið í Washington DC, í mót­mæla­skyni vegna þjóð­ar­morðs­ins á Gaza.

Maður að nafni Aaron Bushnell, sem starf­aði í banda­ríska flug­hernum, lést á sjúkra­húsi eftir að hafa kveikt í sér fyrir framan sendi­ráð Ísraels í Washington DC í gær­morgun. Það gerði hann í mót­mæla­skyni vegna þjóð­ar­morðs Ísraela á Palest­ínu­mönnum.

Bushnell hafði fyrr um morg­un­inn sent frétta­miðlum til­kynn­ingu um að hann myndi „fram­kvæma öfga­fullt mót­mæli“ sem hann myndi sýna í beinni á streym­is­síð­unni twitch. Í mynd­skeið­inu sést hann ganga í átt að sendi­ráð­inu og segja: „Ég er virkur með­limur banda­ríska flug­hers­ins og ég verð ekki lengur sam­sekur í þjóð­ar­morði.“

„Ég er að fara að taka þátt í öfga­fullri mót­mæla­að­gerð,“ segir hann svo rólega og gengur niður göt­una. „En miðað við það sem fólk hefur upp­lifað í Palest­ínu af hendi nýlendu­herra sinna, þá er það alls ekki öfga­fullt. Þetta er það sem valda­stéttin okkar hefur ákveðið að verði eðli­legt.“

Her­mað­ur­inn stillir svo upp mynda­véla­sím­anum upp og gengur að grind­verki sendi­ráðs­ins og hellir yfir sig eld­fimum vökva en á í svolitlum erf­ið­leikum með kveikjar­ann. Örygg­is­vörður spyr hvort hann geti aðstoðað hann en svo kviknar í Bushnell. Kemur þá að leyni­þjón­ustu­að­ili og beinir að ein­hverjum und­ar­legum ástæðum byssu að hinum brenn­andi her­manni. Örygg­is­vörð­ur­inn segir við þann aðila að hann þurfi fleiri slökkvi­tæki en ekki byssur, og byrjar að spreyja úr slökkvi­tæki sem hann hafði, á Bushnell, sem hafði þá hnegið niður. Á meðan Bushnell brann, hróp­aði hann ítrekað „Frjáls Palest­ína!“

Var hann fluttur lífs­hættu­lega slas­aður á sjúkra­hús þar sem hann lést af sárum sínum.

Mynd­skeiðið af mót­mæl­unum má sjá hér að neðan. Lesendur eru varaðir sér­stak­lega við því að horfa á það, því þó að það sé búið að gera versta kafl­ann óskýran, er myndefnið afar erfitt áhorfs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Daraxonrasib sýndi lofandi árangur hjá fólki með útbreitt briskrabbamein, en frekari rannsóknir þurfa að leiða í ljós hversu lengi áhrifin vara.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife