Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Gerir unnustu sína brjálaða með tuði: „Endar í geymslunni“

Arnar Freyr Gunnsteinsson býr í Árbænum
Arnar Freyr Gunn­steins­son býr í Árbænum

Arnar Freyr Gunn­steins­son er 34 ára, fæddur og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann er þjón­ustu­full­trúi hjá BL og bassa­leik­ari Ultra Mega Technobandsins Stefáns. Arnar býr ásamt Jóhönnu, unn­ustu hans, í Árbænum. Arnar er Neytandi vik­unnar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Já, ég skoða alltaf verð á sam­bæri­legum vörum þegar ég er að versla í keðj­unum. Get stundum gert Jóhönnu vit­lausa þegar ég fer að pæla í hver fram­leiðir vörur merktum keðj­unum eins og t.d. hver fram­leiðir Bónus-pylsur, Krónu-brauðið og svo tuða ég yfir því að þetta sé allt sami fram­leið­and­inn en samt allur þessi verð­munur.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Hér á árum áður þegar ég fyrst flutti úr for­eldra­húsum þá var ég orð­inn algjör snill­ingur í að mat­reiða ódýrar mál­tíðir. Mín upp­á­halds var eggja­steiktar núðlur með steiktu græn­meti úr fryst­inum. Upp­reiknað núvirði mál­tíð­ar­innar er 149 kr. Ég á það til að gera kjara­kaup á síð­asta séns í Krónunni. Þar leyn­ast oft hel­víti góðir bitar en svo er gott sparn­að­ar­ráð að þykj­ast gleyma að kaupa eitt­hvað…..aaal­veg óvart. Svo veit ég að ég get gert miklu miklu betur í því að vera skipu­lagð­ari í mat­ar­inn­kaupum og ef ég ætti 109 kr fyrir hvert skipti sem ég kaupi mér Pepsi Max í dós þá væri ég í nokkuð góðum málum.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég á það alveg til að nýta mér síður eins og Brask og Brall, Bland.is og fleira til að kaupa suma hluti. Oft hægt að taka gamla þreytta hluti eins og t.d. stofu­borð og gefa því nýtt líf með smá yfir­haln­ingu. Annars erum við Íslend­ingar mjög dug­legir að end­ur­nýta kjöt, græn­meti og ávexti sem ekki selj­ast erlendis.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég hef svona í seinni tíð reynt að til­einka mér það að kaupa frekar gæði fram yfir magn þegar það kemur að fötum. Matar og fatainn­kaup eiga það pínu sam­eig­in­legt að fólk á það til að kaupa of mikið af öllu. Það kann­ast flestir við að eiga boli og skyrtur inní skáp sem maður passar ekki í en tímir ekki að henda eða vera með troð­fullan ísskap af „mat“ t.d. sósum og fl. sem endar svo á því að fara í ruslið við næstu til­tekt. Maður er alltaf að reyna að átta sig á því að maður þarf ekki að eiga allt….alltaf. Að gefa upp­lifun í gjöf er ein mesta snilldin. Þá sleppur maður alveg við að gefa eitt­hvað sem endar í geymsl­unni hjá við­kom­andi.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ís.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, að sjálf­sögðu en ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég gæti ekki gert betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum