Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Goðsögnin Chuck Norris er látin

„Ég eld­ist ekki, ég þró­ast.“

Chuck Norris
Chuck Norris Hasar­mynda­hetjan er fallin frá Mynd: JERRY MARKLAND / AFP

Banda­ríski leik­ar­inn og bar­daga­lista­meist­ar­inn Chuck Norris er lát­inn, 86 ára að aldri. Fjöl­skylda hans greindi frá and­lát­inu á Instagram í dag.

Í yfir­lýs­ingu segir:

„Það er með mik­illi sorg í hjarta sem fjöl­skylda okkar til­kynnir frá skyndi­legu frá­falli ást­kærs Chuck Norris í gær­morgun. Þó við viljum halda aðstæðum einka­málum, þá var hann umkringdur fjöl­skyldu sinni og var í friði.“

Fjöl­skyldan lýsir honum sem manni sem hafi haft djúp áhrif á marga:

„Fyrir heim­inum var hann bar­daga­lista­maður, leik­ari og tákn styrks. Fyrir okkur var hann tryggur eig­in­maður, kær­leiks­ríkur faðir og afi og hjarta fjöl­skyld­unnar. Hann lifði lífi sínu með trú, til­gangi og óbilandi skuld­bind­ingu við þá sem hann elskaði.“

Fréttin kemur í kjöl­far þess að greint var frá því dag­inn áður að Norris hefði verið lagður inn á sjúkra­hús eftir bráða­til­vik á Hawaii, þar sem hann á heim­ili.

Norris hélt upp á 86 ára afmæli sitt nýverið og birti þá mynd­band af sér æfa með box­þjálf­ara. „Ég eld­ist ekki, ég þró­ast. Ég er 86 ára í dag!“ skrif­aði hann þá.

Chuck Norris, sem fædd­ist sem Carlos Ray Norris árið 1940 í Oklahoma, öðl­að­ist fyrst frægð þegar hann lék á móti Bruce Lee í kvik­mynd­inni The Way of the Dragon árið 1972. Hann lék síðar í fjöl­mörgum vin­sælum hasar­myndum, þar á meðal Missing in Action og The Delta Force.

Hann varð einnig heims­þekktur fyrir hlut­verk sitt sem lög­reglu­mað­ur­inn Cordell Walker í sjón­varps­þátt­unum Walker, Texas Ranger, sem nutu mik­illa vin­sælda á árunum 1993 til 2001.

Á net­inu varð hann síðar að menn­ing­ar­fyr­ir­bæri með svoköll­uðum „Chuck Norris stað­reyndum“, ýktum brönd­urum um styrk hans og hörku.

Norris hóf feril sinn í banda­ríska flug­hernum árið 1958 og lærði bar­daga­listir í Suður-Kóreu. Eftir her­þjón­ustu opn­aði hann bar­daga­lista­skóla í Kali­forníu og varð síðar marg­faldur meist­ari í karate.

Hann lætur eftir sig eig­in­konu sína, Genu O’Kelley, og tví­bura­dæt­urnar Dakotu and Danilee, 24 ára, auk fjölda aðdá­enda um allan heim sem minn­ast hans sem einnar stærstu hasar­stjörnu sinnar kyn­slóðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri