Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gunnar Smári foxillur yfir fyrirhugaðri einkavæðingu vegakerfisins: „Samvinnuhugsjón andskotans“

„Einka­framkvæmdir hafa sýnt sig að vera dýrari fyrir almenning en opinberar framkvæmdir. Almenningur borgar þar ekki bara vega­gerðina, borun fjalla eða brúar­smíði, heldur einnig arð til eigenda fyrir­tækjanna áratugum saman, jafnvel til eilífðar­nóns,“ segir Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalista­flokks Íslands í harðorði færslu á Facebook.

Heimilt að fela einkaaðilum gjaldtöku

Færslan kemur í framhaldi af frumvarpi Sigðurðar Inga Jóhannsson um einka­væðingu þjóðvega sem nú liggur fyrir Alþingi. Í frum­varpinu segir:  „Til þess að opna á þann möguleika að stærri vega­framkvæmdir séu unnar sem samvinnu­verkefni ríkis og einka­aðila er nauðsynlegt að kveða í lögum á um heimildir fyrir Vega­gerðina til að fela utan­aðkomandi aðilum með samningi fjár­mögnun tiltekinna framkvæmda, hönnun þeirra, nauðsyn­legan undir­búning og uppbyggingu mann­virkjanna og viðhald þeirra og rekstur. Þá yrði jafnframt heimilt að fela einka­aðilum gjaldtöku af umferð um viðkomandi mannvirki um tiltekinn afmarkaðan tíma til að standa straum af kostnaði við þau“.

Ein stærsta einkavæðing sögunnar

Gunnar Smári gefur lítið fyrir rök Sigurðar Inga og segir ríkis­stjórnina vera með í undir­búningi eina stærstu einka­væðingu sögunnar, sem sé að flytja vega­kerfið yfir til einka­aðila í gegnum svokallaðar einka­framkvæmdir (sem Sigurður Ingi, formaður Fram­sóknar, kalli samvinnu­verkefni, kannski sem yfir­lýsingu um að samvinnu­hugsjón Fram­sóknarmanna snúist núna um að flytja opinberan rekstur til hagnaðar­drifinna einka­fyrirtækja, en ekki um að byggja upp atvinnu­rekstur innan samvinnu­félaga, félaga í eigu starfs­fólks og viðskipta­vina, eins og áður var).

Almenningur neyddur

„Þessi fjár­flutningur er plan­lagður undir yfir­lýsingum um að ríkið, þ.e. almenningur, eigi ekki fyrir vega­framkvæmdum og verði að leita til ríka fólksins eftir fé. Þetta er algjör dellu­kenning, það er nóg til. Og þar að auki; ef hún væri rétt ætti ríkið að skatt­leggja hin ríku eins og áður var gert og nota féð til að leggja vegi. Í stað þess að gefa hinum ríku eftir skatta sína, færa þeim síðan vegina svo almenningur neyðist til að borga þeim fyrir afnotin.

Þetta er samvinnu­hugsjón andskotans”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim