Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Kristinn bendir á sviðsetningu CNN á Sýrlandsfrétt: „Þetta er ekki í fyrsta sinn“

Kristinn Hrafns­son bendir á svið­setn­ingu fréttar CNN frá frelsun á fanga Assad Sýr­lands­for­seta. Reyndist hinn frels­ari vera alræmdur liðs­maður her­sveitar for­set­ans fyrr­ver­andi.

„Í lið­inni viku var ein helsta frétt CNN björgun sjón­varps­stöðv­ar­innar á mann­greyi nokkru úr dýflisu Assad stjórn­ar­innar hvar frétta­kona stöðv­ar­innar, Clarissa Ward, fór í hlut­verk frels­ar­ans og studdi aðfram­kom­inn mann­inn úr myrkum pynt­ing­ar­klefa út í sól­skinið sem hann virt­ist ekki hafa séð árum saman, gaf honum mat, vatn – já og frelsi.“ Þannig hefst færsla Kristins Hrafns­sonar rit­stjóra Wikileaks en við færsl­una birtir hann skjá­skot af frétt CNN, þar sem Clarissa Ward sést leiða „fórn­ar­lambið“ úr fang­els­inu. En síðan kom á dag­inn að fang­inn var ekki það fórn­ar­lamb sem haldið var fram í frétt­inni:

„Ein­hverjir í Sýrlandi könn­uð­ust þó við kauða og í dag varð Clarissa og CNN að við­ur­kenna smá­vægi­leg mis­tök. „Fórn­ar­lamb“ Assad hafði villt á sér heim­ildir og reynd­ist vera alræmdur liðs­maður í her­sveitum Assad­stjórn­ar­innar í Homs og þekktur þar af fjár­kúg­unum, hand­tökum, pynt­ingum fjölda ungra manna og lík­leg­ast mann­drápum.“

Bætir Kristinn við:

„Ekki er nákvæm­lega vitað hvort þessi maður kom sér sjálfur í klef­ann til að láta ,,bjarga” sér en líkum er leitt að því á nokkrum stöðum að hann hafi lent í úti­stöðum við yfir­mann sinn yfir skiptum á ráns­feng sem kúg­aður var úr vösum borg­ara í Sýrlandi og sá hafi komið honum í fang­elsið korteri fyrir fall Assad.“

Rit­stjór­inn bendir á að lokum að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem frétta­konan og CNN séu talin hafa svið­sett atriði í Mið­aust­ur­löndum.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Clarissa og CNN eru talin hafa svið­sett atriði í þessum heims­hluta og alræmdar myndir af henni í Ísrael fyrir ekki svo löngu hvar hún lá á jörð­inni að því er virt­ist í lífs­hættu vegna sprengju­send­inga frá Hamas en í ljós kom að „sprengj­urnar“ voru í raun loft­varn­ar­kerfi Ísra­els­hers.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn