Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Andrés segir skýringar Bjarna um kynjasjónarmið ekki standast skoðun

Andrés Ingi Jónsson segir skýr­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ekki stand­ast skoðun.

Bjarni sat fyrir svörum hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í dag um aðkomu ráðu­neyt­is­ins við til­nefn­ingar í stöðu rit­stjóra nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review

Bjarni gaf sínar skýr­ingar en Andrés sagði þær skýr­ingar ekki stand­ast skoðun. Bjarni sagði að Andrés ætti að líta í eigin barm.

Bjarni hefur greint frá því að honum þyki tími til kom­inn að kona myndi rit­stýra fræða­tíma­rits­inu Nordic Economic Policy Review og gefur í skyn að það sé helsta ástæðan fyrir að hann mælti gegn því að hag­fræði­pró­fess­or­inn Þor­valdur Gylfa­sonar yrði ráð­inn í starfið. Að aldur hans og kyn hefði ráðið úrslitum frekar en póli­tískar skoð­anir Þor­valdar.

Andrés Ingi segir þessa skýr­ingu, um að kynja­sjón­ar­mið hafi ráðið ferð­inni, ekki koma heim og saman við tölvu­póst­sam­skipti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við nor­rænu ráð­herra­nefnd­ina.

Ekkert um kyn í tölvupósti

Andrés tók fram að í þeim tölvu­póst­sam­skiptum hafi ein­göngu verið vísað í póli­tískar skoð­anir Þor­valdar en ekki kyn hans né aldur. Andrés vakti athygli á því og gaf í skyn að málið allt gæti orðið til þess að fræði­menn ótt­ist að tjá sig um sam­fé­lags­mál.

Andrés segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn þurfa að vinna sér inn traust í ljósi sög­unnar og vís­aði í að flokk­ur­inn hafi haldið skrá yfir stjórn­mála­skoð­anir almenn­ings sem var höfð til hlið­sjónar við ráðn­ingu í ýmis störf.

Bjarni sagð­ist ekki átta sig á hvert Andrés væri að fara með fyr­ir­spurn sinni. Hann nýtti þá tæki­færið og skaut á Andrés og bað hann að líta sér nær þar sem hann starfi utan þing­flokkar síðan hann sagði sig úr þing­flokki Vinstri­hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs í nóv­em­ber á síð­asta ári.

Bjarni svar­aði Andrési og sagð­ist ekki sjá hvernig inn­legg fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins gæti með nokkrum hætti skert akademískt frelsi eða atvinnu­frelsi. „Það á eng­inn rétt á að fá þessa stöðu,” lagði Bjarni áherslu á.

Hann kallar eftir að fólk haldi þessu aðskildu, þ.e. ráðn­ingu í opin­berar stöður ann­ars vegar og hins vegar sam­starf vegna útgáfu fræði­rita.

Sjá einnig: Bjarni stendur við ummæli sín um að Þor­valdur sé ekki heppi­legur sam­starfs­að­ili

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas