Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Öxi og átta fórnarlömb – Vettvangurinn var blóði drifinn

Villisca-morðin
Villisca-morðin

Aðfara­nótt mánu­dags­ins 10. júní, árið 1912, voru allir í fasta­svefni á heim­ili Josiah B. Moore og fjöl­skyldu hans í bænum Willisca í Iowa-fylki í Banda­ríkj­unum. Auk hjón­anna, Josiahs, sem var 43 ára, og Söruh, 39 ára, og fjög­urra barna þeirra; Hermans Montgomerys,11 ára, Mary Katherine, 10 ára, Arthurs Boyds, 7 ára, og Pauls Vernons, 5 ára, voru tvær stúlkur gest­kom­andi, Still­in­ger-syst­urnar Ina May, 8 ára, og Lena Gertrude, 12 ára.

Moore-fjöl­skyldan ágæt­lega efnuð, vel þekkt og vel liðin í sam­fé­lag­inu og kvöldið áður hafði verið haldin athöfn fyrir börn í kirkju í grennd við heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Eig­in­kona Josiah hafði skipu­lagt athöfn­ina og hafði öll fjöl­skyldan og Still­in­ger-syst­urnar verið við­stödd hana, en síðan gengið heim á leið að henni lok­inni klukkan 21.30.

Dauðaþögn í morgunsárið

Fer engum frá­sögnum af svefn­förum heim­il­is­fólks og gesta þess, en klukkan sjö, morg­un­inn eftir var barið á úti­dyra­hurð heim­ilis Moore-fjöl­skyld­unnar. Var þar kom­inn nágranni, Mary Peckham, sem tekið hafði eftir að eng­inn virt­ist kom­inn ofan á heim­il­inu.

Mary fékk engin við­brögð við banki sínu og reyndi að opna en dyrnar voru harð­læstar. Nú, Mary hleypti hænsnum Moore-fjöl­skyld­unnar út, en var með böggum hildar og sótti bróður Josiahs, Ross Moore, en hið sama var upp á ten­ingnum þegar hann knúði dyra; ekk­ert svar. Ross bjó svo vel að hafa í fórum sínum auka­lykil að úti­dyr­unum og sá þann kost vænstan að nýta hann.

Blóði drifinn vettvangur

Mary beið úti á ver­önd­inni en Ross gekk inn í for­stof­una og opn­aði dyrnar að gesta­her­berg­inu. Þar mætti honum ófögur sjón; lík Still­in­ger-systr­anna alblóðug á rúm­inu. Ross beið ekki boð­anna og sagði Mary að haska sér og sækja vörð laga og réttar á þeim slóðum, Henry „Hank“ Horton, sem kom skömmu síðar á vett­vang.

Könn­un­ar­leið­angur Henrys um húsið leiddi í ljós nöt­ur­legan sann­leika – í því var eng­inn á lífi. Öll höfðu verið höggvin eða barin til bana og fannst morð­vopnið, öxi löðr­andi í blóði, í gesta­her­berg­inu við lík Still­in­ger-systr­anna. Talið var að morðin hefðu verið framin ein­hvern tím­ann á milli mið­nættis og klukkan fimm um morg­un­inn.

Tveir vindlingastubbar

Virtist sem ódæð­is­mað­ur­inn, eða -menn­irnir, hefði haf­ist handa á efri hæð húss­ins, í hjóna­her­berg­inu. Það sem studdi þá ályktun voru tveir vind­linga­stubbar sem fund­ust á háa­lofti húss­ins – að morð­ing­inn hefði beðið þar í róleg­heitum eftir að heim­il­is­fólk sneri heim frá kirkju og tæki á sig náðir.

Josiah fékk sýnu verri útreið en önnur fórn­ar­lömb. Ekki aðeins hafði hann verið bar­inn oftar í höf­uðið, heldur hafði axar­blað­inu verið beitt á hann en sú var ekki raunin í til­felli eig­in­konu hans eða barn­anna sex. Augu Josiah höfðu hrokkið úr tóft­unum við bar­smíð­arnar og var hvergi að finna í blóð­ugri káss­unni, sem and­lit hans var.

Frétt um hin óhugn­an­legu morð sem framin voru á heim­ili Moore-hjón­anna.

Varnarsár á handlegg Lenu

Síðan hafði morð­ing­inn snúið sér að börnum hjón­anna og hlutu þau sömu útreið og for­eldr­arnir. Að því loknu fór morð­ing­inn aftur inn til hjón­anna og bætti ein­hverra hluta um betur. Var atgang­ur­inn svo mik­ill að einn skór hafði fyllst af blóði og síðan oltið á hlið­ina.

Þá lá leið morð­ingj­ans niður á neðri hæð húss­ins og inn í gesta­her­bergið til Inu og Lenu.

Af verksum­merkjum þar að dæma var ályktað að Lena hefði verið vak­andi þegar þar var komið sögu. Á hand­leggjum hennar fund­ust áverkar sem benti til þess að hún hefði varist ódæð­is­mann­inum og einnig lá hún þversum í rúm­inu, nátt­slopp­ur­inn hafði verið dreg­inn upp að mitti og hún nær­klæða­laus.

Margir lágu undir grun

Ekkert var fast í hendi hvað mögu­legan morð­ingja áhrærði og voru þó nokkuð margir karlar nefndir til sög­unnar í því til­liti. Þeirra á meðal var prestur að nafni George Kelly. Hann þótti svo álit­legur að hann var kærður og réttað yfir honum í tvígang. Í fyrra skiptið komst kvið­dómur ekki að nið­ur­stöðu og í hið síð­ara féll sýknu­dómur.

Annar var Henry Lee Moore, sem þrátt fyrir ætt­ar­nafnið var ekki skyldur Josiah B. Moore.

Henry Lee var síðan úti­lok­aður sem mögu­legur morð­ingi í mál­inu. Hvort það var skyn­sam­leg ákvörðun eða ekki skal látið liggja á milli hluta, en þetta sama ár framdi hann tvö morð sem þóttu í mörgu líkj­ast morð­unum á heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Þau morð framdi hann í des­em­ber árið 1912 er hann gekk af móður sinni og ömmu dauðum og not­aði til þess öxi.

En það er önnur saga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Heimur

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baghaei, segir ásakanirnar tilhæfulausar.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér