Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Þuríður segir sérkennilegt að enginn fatlaður vinni hjá Bjarna

Öryrkja­banda­lag Íslands (ÖBÍ) vekur athygli á því í frétta­til­kynn­ingu að hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu starfi eng­inn fatl­aður ein­stak­lingur.

Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Oddnýjar Harð­ar­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, kemur fram að eng­inn með skerta starfs­getu er í starfi hjá ráðu­neyti hans.

Fyr­ir­spurn Oddnýjar var í tveimur liðum. Hún spyr í fyrsta lagi hve margir ein­stak­lingar með skerta starfs­getu starfi í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og vísar í lög um jafna með­ferð á vinnu­mark­aði. Í öðru lagi spyr Oddný hvort mótuð hefði verið stefna í ráðu­neyt­inu varð­andi ráðn­ingar ein­stak­linga með skerta starfs­getu.

Í svari Bjarna kemur fram að eng­inn starfs­maður ráðu­neyt­is­ins sé með skerta starfs­getu.

Í til­kynn­ingu ÖBÍ segir að svarið við seinni lið spurn­ing­ar­innar sé ekki flókið.

„Svar ráð­herra er ekki flókið. Ekki hefur verið mótuð sér­greind stefna fyrir ráðu­neytið um ráðn­ingar ein­stak­linga með skerta starfs­getu. Einnig segir í svar­inu að í mannauðs­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins komi fram að allt starfs­fólk eigi að eiga sömu mögu­leika á að geta nýtt hæfi­leika sína í starfi og skal ekki sæta mis­munum af nokkrum toga. Þetta tekur m.a. til starfs­fólks með skerta starfs­getu,“ segir í til­kynn­ingu ÖBÍ.

Þá er haft eftir Þuríði Hörpu Sig­urð­ar­dóttur, for­manns Öryrkja­banda­lags­ins að henni þyki svar ráð­herra að mörgu leiti merki­legt. Hún segir að Bjarni sé sá ráð­herra sem hefur mest talað fyrir starfs­getu­mati, að ekk­ert and­rými væri í fjár­lögum fyrir öryrkja fyrr en starfs­getu­mat yrði tekið upp.

„Það er því sér­kenni­legt, svo ekki sé dýpra í árina tekið, að hans eigið ráðu­neyti skuli ekki ganga á undan með góðu for­dæmi, og ráða inn fólk með skerta starfs­getu,“ segir Þuríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas