Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Páll segir útvarpsstjóra tefja rannsóknina: „Ég öfunda ekki lögregluna á Akureyri“

Eva og Páll
Eva og Páll

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri og Eva Hauks­dóttir lög­maður hans, ræddu við Frosta Logason í hlað­varps­þætt­inum Á spjalli með Frosta Logasyni. Þar fóru þau yfir „síma­málið“ svo­kall­aða og ræðir Páll á opin­skáan hátt um allt því tengdu.

Frosti spurði þau hvar málið stæði í núinu.

Eva: „Það er nú ekki gott að segja hvar nákvæm­lega málið er statt. Það sem við vitum er að rann­sókn er ekki alveg lokið en það er langur tími sem hefur liðið sem við höfum talið að við séum að fara að sjá fyrir end­ann á þessu en rann­sókn er ekki alveg lokið.“

Páll: „Við erum kannski ekki rétta fólkið til að spyrja að þessu. Ég myndi spyrja Þórð Snæ að þessu því að okkur vantar gögn frá Google. Og for­stjóri per­sónu- og örygg­is­stefnu Google, fyrr­ver­andi, ég tek það fram, hann er eða var líka hlut­hafi í Kjarn­anum og kona hans er hlut­hafi í Heim­ild­inni. Þannig að ég held að þú ætti bara að bjóða Þórði Snæ hingað og spurja hann hvort hann geti ekki spurt þennan hlut­hafa að þessu.“

Frosti: „Áttu þá við að lög­regl­unni vantar gögn frá Google? Og hefur ekki fengið, það hefur verið ein­hver tregða til þess?“

Páll: „Já.“

Frosti: „Og eru það gögn sem væri sjálf­sagt fyrir lög­regl­una að fá?“

Páll: „Mér skilst að þetta sé venju­legt ferli hjá lög­regl­unni, það er ein­hver aðili hjá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, hann er bara í sam­bandi við Google og Facebook og þessa aðila og óskar eftir þessu. En ein­hverra hluta vegna þá er ein­hver tregða. Það veit eng­inn hvenær þau verða afhent. En ég held að það séu allir sam­mála, hvort sem það er ég eða Þórður eða Þóra eða what ever, ég held það séu allir sam­mála um að ljúka mál­inu. Ég ætla líka að benda á eitt; ég öfunda ekki lög­regl­una á Akureyri, þú veist, mað­ur­inn sem situr uppi í Efsta­leiti er fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri og hann hefur nú ekki beint sýnt sam­starfsvilja. Þannig að það er ekki eins og þetta sé ein­hvað piece of cake fyrir lög­regl­una á Akureyri, ég finn bara til með henni, hverja þeir eru að eiga við.“

Frosti: „Einmitt það Eva, að for­stjóri rík­is­stofn­unar eða útvarps­stjóri sé ekki til­bú­inn að greiða fyrir rann­sókn lög­reglu, er það eðli­legt eða óeðli­legt eða hvað finnst þér um það?“

Eva: „Það eru bara ákveðin sjón­ar­mið sem veg­ast þarna á, ann­ars vegar fjöl­miðla­frelsi og  hans skylda til þess að standa vörð um frelsi fjöl­miðla og hins vegar skylda hvers manns til að aðstoða við upp­ljóstrun saka­máls. Þannig að ég ætla ekk­ert að taka end­an­lega afstöðu til þess sko en það eru þessi við­horf sem veg­ast á.“

Hægt er að horfa á við­talið í heild sinni á brot­kast.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas