Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Situr uppi með tugmilljóna galla á húsi sínu og er hunsaður af Hafnarfjarðarbæ: „Aleigan er farin“

Sæmundur Jóhannsson og Rósa Guðbjartsdóttir. Myndin er samsett.
Sæmundur Jóhanns­son og Rósa Guð­bjarts­dóttir. Myndin er sam­sett.

Sæmundur Jóhannsson er íbúi í Hafnar­firði, og hann hefur ekki fallega sögu að segja um viðbrögð bæjarins vegna alvarlegra gallamála á eign sinni.

„Mig langar að segja ykkur mína reynslu af fasteigna­viðskipum í Hafnar­firði. Árið 2008 kaupum við hjónin hús á Burkna­völlum. Við kaupum þetta hús í gegnum fasteinga­söluna ÁS í Hafnar­firði sem full tilbúið hús.“

Sæmundur segir að „um 5 árum seinna komumst við að því að húsið er enn á fokheldisstigi en ekki full tilbúið hús eins og við töldum okkur vera að kaupa. Sem sagt þá vorum við plötuð af seljanda húsins og fasteingnasölunni ÁS til að kýla söluna í gegn. Ekkert stóð í kaup­samning að eignin væri á fokheldisstigi; það var gallamál á eigninni 2012, þá komumst við líka að því að eignin er ekki með bygginga­stjóra ábyrð frá árinu 2005, sem á ekki að vera hægt.“

Sæmundur hefur reynt oft að gera eitthvað í málunum en allsstaðar rekið sig á veggi innan stjórn­kerfis Hafnar­fjarðar­bæjar:

„Bygginga­fulltrúi Hafnar­fjarðar móttekur bréf þess efnis árið 2005 að það sé engin bygginga­stjóra­trygging á eigninni en stöðvar ekki framkvæmdir eins og lögin kveða um. Svo er húsið byggt algjör­lega eftirlits­laust.

Hildur Bjarna­dóttir bygg­ing­ar­full­trúi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar.

Ég sendi fjölda tölvu­pósta á Bygginga­fulltrúa Hafnar­fjarðar vegna málsins en engum tölvu­póstum var svarað.

Ég hef í tvö skipti reynt að fá loka­úttekt á eignina, en alltaf boðar byggingar­stjórinn Arnór Frið­þjófsson forföll klukkusstund fyrir boðaða fundi.“

Eðlilega er Sæmundur ósáttur, enda er hús hans illa farið vegna áður­nefndra ástæðna sem Hafnar­fjarðarbær hefur ekkert viljað gera í:

„Núna árið 2023 er ég með 40-50 milljóna króna galla á eigninni. Hef reynt að hafa samband við Rósu Guðbjarts­dóttir bæjar­stjóra sem svarar engum tölvu­póstum; hef fengið neitun við bóta­skyldu frá lögfræðingi Hafnar­fjarðabæjar.“

Ívar Bragason lög­maður Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar.

Mikil veikindi hafa verið hjá fjöl­skyldu Sæmundar vegna myglu sem fannst víða í húsinu, og enn er fjöl­skyldan að leita sér læknis­hjálpar sjö mánuðum eftir að þau yfirgáfu húsið:

„Múrara­meistari hússins viðurkennir að hann hafi aldrei stigið inn í þetta hús, en kannast þó við uppáskrift sína sem Múrara­meistari húsins.“

Að endingu segir Sæḿundur að „það er ljóst að Hafnar­fjarðarbær ber ábyrð á eftirlits­skyldu á byggingum í bæjar­félaginu.

Ef byggingar­fulltrúi Hafnar­fjarðar hefði stöðvað framkvæmdir árið 2005, eins og lög gera ráð fyrir, þá væri ég ekki með stór­gallað hús og veika fjöl­skyldu sem er komin í leigu­húsnæði í öðru bæjar­félagi; aleigan er farin.

Það er alveg glatað að margfalda sínar skuldir með lántöku til að borga fyrir fúsk annara. Ég vona eftir næstu kostningar komi ný bæjar­stjórn í Hafnar­firði sem kann að axla ábyrð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim