Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Dagur B. vill finna lausn á vanda bræðranna: „Kjötborg lengi lifi!“

Dagur og Reykvíkingar ársins 2014.
Dagur og Reyk­vík­ingar árs­ins 2014. Mynd: Facebook

Dagur B. Egg­erts­son vill finna lausn fyrir bræð­urna í Kjötborg en Reykja­vík­ur­borg hefur nú ákveðið að hefja gjald­töku í hverfi versl­un­ar­innar.

Borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Dagur B. Egg­erts­son segir að fjöl­margir hafi heyrt í honum og bent á að lausn þurfi að finn­ast fyrir bræð­urna í Kjötborg í Vest­ur­bænum vegna þeirrar gjald­töku sem borgin hefur ákveðið að leggja á bíla­stæði í hverf­inu en þeir bræður hafa um ára­bil verið með heim­send­inga­þjón­ustu á vörum sínum og því er gjald­takan afar íþyngj­andi fyrir þá.

„Les í fréttum að þeir Kristján og Gunnar séu að spá í að reyna að ná tali af mér – sem við hljótum að geta komið í kring,“ segir borg­ar­stjór­inn í færslu á Facebook.

Í færsl­unni segir hann að það hafi verið eitt hans fyrst verk í emb­ætti árið 2014 að útnefna þá bræður Reyk­vík­inga árs­ins „þótt þeir hafi reyndar ekki geta gefið sér mik­inn tíma til að veiða í Elliða­ánum – Kjötborg þurfti að opna! Ég fór því með lax til þeirra seinna sama dag, sbr með­fylgj­andi mynd.“

Dagur útskýrir svo ástæð­una fyrir gjald­tök­unni en hann segir hana til­komna vegna „mik­illar fjölg­unar bíla­leigu­bíla og lang­tíma geymslu á bílum í íbúða­hverfum nálægt mið­borg­inni.“ Þá segir hann að borgin komi til móts við íbúa með sér­stökum íbúa­kortum. „Það er hár­rétt ábend­ing að skyn­sam­legt getur verið að finna lausnir fyrir rekstr­ar­að­ila sem falla undir nær­þjón­ustu því það er sann­ar­lega stefna borg­ar­innar að efla hana. Kaup­mað­ur­inn á horn­inu er mjög mik­il­vægur til að gera hverfin sjálf­bær.“

Að lokum seg­ist Dagur vilja finna lausn á þessu og bendir á að í erlendum borgum séu til ein­hverjar fyr­ir­mynd­ar­lausnir sem borgin hljóti að „geta skoðað hratt og vel.“ Bætir hann svo við: „En fyrsta skref er að bjóða þeim bræðrum í kaffi og fara yfir málin. Kjötborg lengi lifi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar