Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Andrúmsloftið verður verra og verra með hverjum deginum“

Áhafnir Haf­rann­sókna­stofn­unnar og Land­helg­is­gæsl­unnar hafa verið án samn­ings síðan í mars í fyrra og vilja að samið verði við þær sem fyrst.

Deilan er í hnút
Deilan er í hnút Segir að and­rúmslofið sé að verða verra og verra. Mynd: Landhelgisgæslan.

Áhafnir Haf­rann­sókna­stofn­unar og Land­helg­is­gæsl­unnar hafa verið án samn­ings í meira en ár. Atkvæða­greiðsla um verk­fall hjá Hafró. Telja sig útundan í vinnu­tíma­stytt­ingu.

Nú hafa áhafnir skipa Haf­rann­sókna­stofn­unar og loft­fara sem og skipa Land­helg­is­gæsl­unnar verið samn­ings­lausar síðan í mars í fyrra, en þá rann kjara­samn­ingur þeirra við ríkið út, en áhafnir Land­helg­is­gæsl­unnar hafa hins vegar ekki verk­falls­rétt, en það hafa áhafnir Haf­rann­sókna­stofn­unnar aftur á móti. Munu þær greiða atkvæði um vinnu­stöðvun. Verði vinnu­stöðv­unin sam­þykkt, mun hún hefj­ast í lok ágúst.

Formaður Félags skip­stjórn­ar­manna, Árni Sverr­is­son, sagði við RÚV að þetta séu einu stéttir sjó­manna sem ekki hafi verið samið við og engir fundir um kjara­mál hafa verið boð­aðir:

„Þrátt fyrir að stjórn­völd tali um mik­il­vægi þess­ara stofn­ana fyrir land og þjóð, þá hefur ekki náðst saman. Okkur hugn­ast ekki að missa þetta inn i sum­arið, and­rúms­loftið hjá mönnum á þessum skipum og í þessum störfum sem við semjum fyrir er veru­lega farið að súrna.“

Árni er spurður að því hvað beri á milli í deil­unni:

„Það er búið að semja um betri vinnu­tíma og vakta­hvata og vinnu­tíma­stytt­ingu hjá öllum þorra lands­manna en þessar stéttir hafa orðið útundan og það er það sem við höfum ekki náð saman um. Það er ljóst að ríkið þarf að koma að þessu máli með meiri fjár­muni.“

Árni segir langvar­andi vinnu­deilur hafa vond áhrif á starfs­menn:

„And­rúms­loftið verður verra og verra með hverjum deg­inum sem líður. Það er uggur í manni vegna þess að þetta eru stéttir sem eru að leggja sig fram um að gæta land­helg­innar, svo á flug­vélum og þyrlum Land­helg­is­gæsl­unnar, bjarga manns­lífum og leggja sjálfa sig í hættu við það. Það er aldrei gott á vinnu­stað að vera samn­ings­laus.“

Kemur fram að í þessum hópi eru meðal ann­ars skip­stjórar og skip­herrar á varð­skipum, skip­stjórn­ar­lærðir sig­menn á þyrlum Gæsl­unnar og stýri­menn og skip­stjórar í stjórn­stöð hennar og á flug­vél hennar. Einnig eru þar sjó­mæl­inga­menn, skip­stjórar og stýri­menn á rann­sókna­skipum Haf­rann­sókna­stofn­unar, vél­stjórar, hásetar sem og mat­sveinar:

„Það er bara ósamið við allar sjóstéttir hjá þessum stofn­unum rík­is­ins. Það þarf bara að fara að leysa þetta. Þetta hefur dreg­ist allt of mikið á lang­inn,“ sagði Árni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas