Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ um fjölda flóttamanna: „Við erum komin með nóg“

Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ vill að ríkið byggi flóttamannabúðir en að ekki sé pláss fyrir þær í Reykjanesbæ. Myndin er samsett
Margrét Þór­ar­ins­dóttir bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ vill að ríkið byggi flótta­manna­búðir en að ekki sé pláss fyrir þær í Reykja­nesbæ. Myndin er sam­sett

„Það er bara upp­selt! Við erum komin langt yfir þol­mörk,“ segir Margrét Þór­ar­ins­dóttir, bæj­ar­full­trúi Umbótar í Reykja­nesbæ og yfir­flug­freyja í útvarps­þætt­inum Bítinu á Bylgj­unni. Þar ræddi hún við þátta­stjórn­endur um gríð­ar­legan fjölda flótta­manna í Reykja­nesbæ. „Við erum komin með nóg,“ segir Margrét og bætir við að staðan hafi verið rædd á bæj­ar­stjórn­ar­fundum en að skoð­anir Umbótar rími ekki alltaf við skoð­anir meiri­hlut­ans.

Margrét segir að háværu kalli íbúa sveita­fé­lags­ins eftir íbúa­fundi hafi ekki verið svarað af sitj­andi meiri­hluta. Síðasti íbúa­fund­ur­inn var hald­inn í mars en hann fór fram­hjá mörgun og Margrét segir stöð­una hafa versnað mikið síðan þá.

„Við verðum að hlusta á íbúa Reykja­nes­bæjar og ef þeir hafa áhyggjur – þá verðum við að verða við því kalli,“ segir hún og bendir á að nauð­syn­legt sé að halda íbúa­fund. „Við verðum að hlusta“

Aðspurð hvaða lausn Margrét sjái á stöð­unni svarar hún:

„Það sem við getum gert er að segja stopp! Hingað og ekki lengra. Við getum ekki tekið við fleiri flótta­mönnum“.

Reykja­nes­bær getur ekki séð um flótta­manna­málin á Íslandi, útskýrir Margrét og bætir við að vax­andi straumur flótta­manna telji á tugum eða hund­ruðum í hverjum mán­uði. Þá bendir hún á að stjórn­völd verði að leysa þann vanda sjálf.

Fram kom í við­tal­inu að ríkið hafi leigt mik­inn fjölda bygg­inga og íbúða á Ásbrú fyrir flótta­menn og að tals­vert hafi verið um að ein­stak­lingar og fjöl­skyldur sem búsettar voru fyrir á svæð­inu hafi ekki fengið end­ur­nýjun leigu­samn­inga sökum þessa. Aðspurð hvort að sveit­ar­fé­lagið muni aðstoða þann hóp í leit­inni að nýju hús­næði svarar hún:

„Ég ætla að vona það og að þau fái hús­næði og lendi ekki á göt­unni.“

Um það bil 1.500 flótta­menn er nú búsettir í Ásbrú og segir hún að með þessu áfram­haldi muni þetta enda með ósköpum. Nauð­syn­legt séð að horfa til nágranna­ríkj­anna og læra af þeirra reynslu.

Í lokin vill Margrét bæta við:

„Stjórn­völd verða að byggja flótta­manna­búðir – en það er ekki pláss fyrir þær í Reykja­nesbæ, þau verða að taka á vanda­mál­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas