Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Efling lýsir yfir stuðningi við grænlensk stéttarfélög

„Við lifum á hættu­legum og ófyr­ir­sjá­an­legum tímum.“

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Stjórn Eflingar stendur með Græn­lend­ingum Mynd: Efling

Efling lýsir yfir ein­dregnum stuðn­ingi við græn­lenskt verka­fólk og stétt­ar­fé­lög lands­ins á þeim ólgu­tímum sem nú ríkja í alþjóða­málum. Stjórn félags­ins sam­þykkti í gær ályktun þar sem sendar eru bar­áttu­kveðjur til Sulinermik Inuussutissarsiuteqartut Kattuffiat (SIK), lands­sam­bands græn­lenskra stétt­ar­fé­laga.

Í álykt­un­inni leggur stjórn Eflingar áherslu á að fram­tíð Græn­lands skuli alfarið ráðin af Græn­lend­ingum sjálfum og lýsir yfir sam­stöðu gagn­vart þeirri ógn sem hún segir steðja að land­inu.

„Við lifum á hættu­legum og ófyr­ir­sjá­an­legum tímum. Nú um stundir þekkja fáir það betur en Græn­lend­ingar.“

Stjórn Eflingar vísar þar sér­stak­lega til hót­ana Banda­ríkj­anna og for­seta lands­ins, Donald Trump, um mögu­lega inn­rás eða yfir­ráð yfir græn­lensku land­svæði:

„Banda­ríkin og for­seti þeirra, Donald Trump, hóta inn­rás Banda­ríkj­anna á græn­lenskt land­svæði.“

Í álykt­un­inni segir að afleið­ingar slíkra aðgerða séu ófyr­ir­sjá­an­legar og geti haft alvar­leg áhrif á sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Græn­lands og stöðu launa­fólks í land­inu:

„Við vitum ekki hverjar afleið­ingar slíkra aðgerða yrðu. Það gæti ekki aðeins leitt til missis sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttar Græn­lands, heldur einnig til versn­andi aðstæðna fyrir græn­lenskt verka­fólk.“

Þá varar stjórn Eflingar við því að aukin aðkoma banda­rískra fyr­ir­tækja að græn­lenskum vinnu­mark­aði geti grafið undan rétt­indum launa­fólks:

„Koma banda­rískra fyr­ir­tækja inn á græn­lenskan mark­aði gæti leitt til veik­ari verndar launa­fólks, sem væri brott­hvarf frá þeim sterku stétt­ar­fé­lags­hefðum sem við eigum sam­eig­in­legar í nor­rænu sam­starfi.“

Efling lýsir yfir óskor­aðri sam­stöðu með græn­lenskum félögum sínum og segir bar­áttan snú­ast um sam­eig­in­leg grund­vall­ar­gildi:

„Við munum mæta þess­ari ógn ásamt ykkur og gera það sem við gerum alltaf: Að standa saman og gef­ast aldrei upp.“

Að mati stjórnar Eflingar má fram­tíð Græn­lands ekki ráð­ast af stór­veldum eða hern­að­ar­banda­lögum:

„Framtíð Græn­lands verður umfram allt að verða ákvörðuð af Græn­lend­ingum sjálfum. Ekki af Banda­ríkj­unum og ekki af NATO.“

Í lok álykt­un­ar­innar er stuðn­ingur Eflingar ítrek­aður af fullum þunga:

„Stjórn Eflingar stétt­ar­fé­lags stendur þétt við hlið ykkar í þess­ari afar erf­iðu stöðu og þið getið treyst á fullan stuðn­ing okkar. Fyrir frjálst Grænland með sterk rétt­indi launa­fólks!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas