Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki

„Þetta er við­bragð við þjóð­ar­morði sem önnur stjórn­völd eru sam­sek um“

Magga Stína
Magga Stína Magga Stína stefnir óðfluga á Gaza Mynd: Aðsend

Margrét Kristín Blöndal eða Magga Stína eins og hún er kölluð er eins og alþjóð veit, nú á leið með skip­inu Conscience til þess að sam­ein­ast Frið­ar­flot­anum svo­kall­aða sem stefnir á Gaza, til brjóta ólög­lega her­kví Ísraela og opna leið inn af strönd Gaza, með hjálp­ar­gögn. Ísraelar hafa nú þegar hand­tekið hund­ruði áhafn­ar­með­lima ann­arra báta í sömu erinda­gjörðum. Að sögn Möggu Stínu er þetta floti sem siglir inn eins og bárur, hver á eftir ann­ari með nokkra daga milli­bili. Gert er ráð fyrir að skipið sem hún siglir með til Gaza, verði um það bil viku á leið­inni en það lagði úr höfn frá Otranto á Ítalíu 30.sept­em­ber.

Í við­tali við Mannlíf segir Magga Stína að and­rúms­loftið um borð sé gott, en um borð með henni eru aðal­lega heil­brigð­is­starfs­menn og blaða­menn en þær starfs­stéttir eru meðal þeirra sem hafa verið gerðar að sér­stökum skot­mörkum und­an­farna 23 mán­uði. Ger­eyð­ing inn­viða og starf­stétta er liður í skipu­lögðu þjóð­ar­morði Ísrael á Palest­ínsku þjóð­inni að sögn Möggu Stínu. 

Aðspurð hvað fjöl­skylda hennar finn­ist um þessa ákvörðun hennar, að ráð­ast í svo hættu­lega för, segir Magga Stína: „Það eru auð­vitað alls konar en ég finn aðal­lega fyrir algerum stuðn­ingi. Þetta er eitt­hvað sem fjöl­margir myndu vilja gera.“

Eins og áður sagði réð­ust her­menn Ísra­els­hers um borð í nokkra báta Frels­is­flot­ans fyrir tveimur dögum og hand­tóku um 400 manns, meðal ann­ars sænska aðgerð­ar­sinn­ann Gretu Thunberg. Árið 2010 réð­ist her­inn einnig um borð í báta Frels­is­flot­ann á alþjóð­legu haf­svæði og drápu 10 áhafn­ar­með­limi eins báts­ins sem ætl­aði sér að flytja hjálp­ar­gögn til Gaza-búa. 

Hvernig varð Möggu Stínu og félögum hennar um borð í Conscience um þær fregnir að Ísra­els­her hefði hand­tekið áhafn­ar­með­limi flot­ans á dög­un­unum?

„Við fylgd­umst náið með því og það var nátt­úru­lega bara jafn sturlað og raun ber vitni fyrir alla aðra, að staðan sé sú að Ísra­els­her kom­ist upp með það marg­ít­rekað að stöðva skip á alþjóð­legu haf­svæði, ræni fólki af þeim og taki til fanga. Þetta eru bátar sem mann­aðir eru almennum borg­urum sem eru í full­kom­lega lög­legum erinda­gjörðum, sum sé þeim að ferja neyð­ar­að­stoð til Gaza á meðan fólkið á Gaza sveltur af þeirra völdum. Þeir beita svelti sem einu af fjöl­mörgum vopnum til notk­unar í þjóð­ar­morð­inu.“ 

Er Magga Stína ekk­ert smeyk?

„Það skiptir engu máli hvort ég sé hrædd eða ekki, þetta er við­bragð við þjóð­ar­morði sem önnur stjórn­völd eru sam­sek um vegna þess að þau bregð­ast ekki við eins og þeim ber skylda til að gera sam­kvæmt alþjóða­lögum, kröfu almenn­ings og öllu sið­ferð­is­legum gildum. Barn er drepið á Gaza á klukku­stundar fresti af Ísrael! 480.000 börn hafa verið drepin í það minnsta á 23 mán­uðum og þá eru for­eldrar ótaldir. Að sigla í þessum erinda­gjörðum er bæði okkar sterkasta von í augna­blik­inu en líka er það sterkasta von íbúa Gaza. Hugsaðu aðeins um það. Hvar eru yfir­völd?!”

Hér fyrir neðan má sjá yfir­lýs­ingu frá áhafn­ar­með­limum Conscience sem birt var í kjöl­far hand­töku aðgerð­ar­sinn­anna í fyrra­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas