Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

17 íslenskir dómarar heita yfirvöldum „trú og hlýðni“

Allir starf­andi dóm­arar við Hæsta­rétt Íslands og Lands­rétt hafa und­ir­ritað nýrri útgáfu dreng­skap­ar­heits dóm­ara þar sem þeir heita að „að halda stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins Íslands“. Þetta er í stað eldra dreng­skap­ar­heits sem lofar að dóm­ari verði „trú/ r og hlýðin/ n stjórn­völdum“ 17 starf­andi hér­aðs­dóm­arar hafa hins vegar und­ir­ritað heit um hlýðni við yfir­völd.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Þór Ólafs­sonar, þing­manns Pírata. Það er þó ekki þar með sagt að dóm­ar­arnir 17 skuli sitja og standa í sam­ræmi við óskir yfir­valda. Stjórn­ar­skrá Íslands kveður á um að dóm­endur skuli ein­ungis fara að lögum í emb­ætt­is­verkum sínum. Þá segir í lögum um dóm­stóla að dóm­arar séu sjálf­stæðir í stöfum sínum og leysi þau af hendi á eigin ábyrgð.

„Það er afstaða ráð­herra að dóm­urum beri í störfum sínum að halda trúnað við stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins og lands­lög öll. Það er ekki afstaða ráð­herra að dóm­arar hafi trún­aðar- eða hlýðni­skyldum að gegna gagn­vart honum. Í því sam­bandi skal áréttað að í 2. gr. stjórn­ar­skrár­innar er kveðið á um þrí­skipt­ingu rík­is­valds. Af því leiðir að ekki er á valdsviði ráð­herra að gefa dóm­urum fyr­ir­mæli um störf sín og bæri þeim engin skylda til að gegna slíkum fyr­ir­mælum væru þau gefin. Texti í dreng­skap­ar­heiti um að dóm­ari heiti að vera stjórn­völdum lands­ins trúr og hlýð­inn víkur fyrir ákvæðum stjórn­ar­skrár og lands­laga sam­ræm­ist hann þeim ekki,“ segir í svari ráð­herra til þing­manns Pírata um hvort ráð­herra líti svo á að þeir dóm­arar sem ekki hafa und­ir­ritað nýtt dreng­skap­ar­heit „skuli vera trúir og hlýðnir ráð­herra?“

Ráðherra lítur ekki svo á að leysa þurfi hér­aðs­dóm­ara sem und­ir­rit­uðu eldri útgáfu af dreng­skap­ar­heiti undan því. Dómurum sé tryggt sjálf­stæði í stjórn­ar­skrá og lögum um dóm­stóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas